Þetta var meðal þess sem var til umfjöllunar í nýjasta þætti Hvað er að frétta? Smáhrifavaldar halda áfram að koma á óvart en andlitshulurnar sem má sjá í þættinum hér að neðan eru í boði Rúmfó, fyrirgefiði Jysk, og Pítsunnar - „Andlitshulur fyrir hvert tilefni“. Duldar auglýsingar verða vart lúmskari.
Sakborningar virðast vera að prófa sig áfram og fara ótroðnar slóðir þessa dagana en Íris Helga Jónatansdóttir, meintur eltihrellir, mætti sem bókadraugurinn í Héraðsdóm Reykjaness sama dag og árshátíð verjenda fór fram.
Rétt á meðan við erum á þeim nótum, það að neita því að hafa mætt í heimahús með fóstur í krukku er smá eins og að þurfa að þvertaka fyrir að hafa drukkið of mikið í starfsmannaskemmtun. Gott og vel að þú neitir - en það er greinilegt að eitthvað gekk á.
Snert var á fleiri málum í nýjasta þættinum af Hvað er að frétta? en þar á meðal er stolt móðir sem skaut mann til bana, viðbrögð Frakklandsforseta við beiðni þingflokksformanns Flokks fólksins og menningarmálaráðherra á tánum.