Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Einn kennaranna á ljósmynd Síðuskóla sem birt var til stuðnings transhugmyndafræði er, eins og greinarhöfundur, sjúkraliði og kennari. Reyndar er lengra síðan Sigríður Jóhannesdóttir vann sem sjúkraliði, en þekking í faginu hverfur ekki.
Í Morgunblaðsgreininni, sem fór svo fyrir brjóstið á sjúkraliðanum og kennaranum að hún sá ástæðu til að leggja sitt að mörkum gegn höfundi greinarinnar, var rætt um hormónablokkara fyrir börn.
Í greininni, sem hún tekur undir að sé fordómafull, stendur: „Hef lesið að Samtökin ’78 bendi á að hormónablokkandi lyf séu nánast skaðlaus, þvert á vitneskju sérfræðinga sem hafa hver á fætur öðrum stigið fram.“ Framkvæmdastjóri Samtakanna ’78 skrifaði það í grein sem Vísir.is birti.
Hormónablokkandi lyf hafa verulegar afleiðingar fyrir börn og skemma þau til lífstíðar. Með hliðsjón af málflutningi þeirra finnst mér allt benda til að Samtökin gerist brotleg við „… stefnir heilsu barnsins og þroska í hættu“, boði þau þennan boðskap í fræðslu sinni til skólabarna.
Sigríður, sem sjúkraliði – heilbrigðismenntuð kona – hlýtur að vita að bloggarinn fer með rétt mál. Lyfin hafa ævarandi afleiðingar fyrir börn sem fá þau. Þau valda óafturkræfum aukaverkunum, svo sem geldingu, beinþynningu og aukinni hættu á krabbameini, svo fátt eitt sé nefnt.
Greinarhöfundur spyr: Hefði umræddur kennari ekki verið maður að meiri með því að setjast niður með transhugmyndafræðihópnum og segja: Vitið þið, það er sannleikskorn í þessum skrifum. Hafið þið orðið vör við að Samtökin ’78 boði þetta inni í skólanum? Hefði hún ekki síðan átt að ræða við greinarhöfund?
Transhugmyndafræðin og stúlkur
Kennarinn hefði kannski átt að skoða eftirfarandi og spyrja: Er þetta rétt? „Boði samtökin í skólakerfinu að konur hafi ekki einkarétt á réttindum sem þær hafa barist fyrir og orðum sem notuð eru yfir konur fara þau yfir strikið. Það særir stúlkur, móðgar og sýnir vanvirðandi háttsemi í þeirra garð. Stúlkur eru helmingur af nemendahópi í skólastofu.“
Sigríður, sem unglingakennari, á að vera gagnrýnin á þá fullyrðingu transhugmyndafræðinnar að strákar sem segjast vera stelpur hafi aðgang að salernum og baðklefum, sýnist þeim svo. Lög um kynrænt sjálfræði tryggja það. Sem sjúkraliði og kennari veit hún að konur hafa barist fyrir réttindum til sérrýma. Það var ekki sjálfgefið í denn. Hún veit líka, sem sjúkraliði, að blæðingar fara oft illa í stúlkur og að þær vilja ekki deila salerni með strákum, hvað þá baðklefum.
Já, maður getur spurt: Virðir transhugmyndafræðihópur Síðuskóla alla nemendur?
Að segja börnum sannleikann
Sigga veit líka, sem sjúkraliði og kennari, að kynin eru tvö. Hún ætti að kynna sér skrif Dawkins þróunarlíffræðings, en hann skrifaði: „Kynvitund, öfugt við líffræðilegt kyn, er andvísindaleg goðsögn.“
Hann hélt áfram:
„Ef barn með getnaðarlim tilkynnir að það sé í raun stúlka, hafa foreldrar og kennarar beinlínis skyldu til að fræða barnið um þann vísindalega sannleika að það sé drengur.“
„Dawkins tók jafnframt skýrt fram að hvorki líkamlegt né andlegt ofbeldi gegn börnum væri réttlætanlegt undir nokkrum kringumstæðum.“ Um það geta allir kennarar verið sammála. Andlegu ofbeldi á heldur ekki að beita gegn þeim kennurum sem vilja að sannleikurinn komi fram þegar transhugmyndafræðin er annars vegar.
„Auðvitað ætti ekkert foreldri að beita líkamlegu eða andlegu ofbeldi af nokkurri ástæðu. En ef einhver ætti að sæta ákæru eru það þeir sem bregðast umönnunarskyldu sinni með því að hvetja börn til þeirrar andvísindalegu ranghugmyndar að þau geti sjálf valið sér líffræðilegt kyn.“ Kennarar eru m.a. í þeim hópi.
Er ekki tímabært að kennarar, skólastjóri og deildarstjóri í Síðuskóla og öðrum skólum líti upp úr bæklingum sem Samtökin ’78 gefa út og leiti sér upplýsinga um transhugmyndafræðina erlendis?
Að sýna faglega hegðun
Sigríður hefði, sem sjúkraliði, auðveldlega getað leitað að vísindalegum rannsóknum og greinum til að kanna hversu fordómafullur þessi þáttur greinarinnar er: „Samtökin hafa haldið fram að börn séu í sjálfvígshættu fái þau ekki viðeigandi meðferð við kynvanda sínum. Engar rannsóknir styðja þann málflutning og er börnum beinlínis hættulegur. Alveg ljóst er að ef samtökin ræða þetta í fræðslunni stefna þau heilsu barna í hættu.“
Þarna hefði transhugmyndafræðihópur Síðuskóla átt að spyrja: Getur þetta verið rétt? Eigum við að spyrja greinarhöfund hvað hún hefur fyrir sér í þessu máli þegar hún snýr heim frá Ríga? Rannsóknir sýna að þeir sem fara í gegnum „kynleiðréttingarferli“ eru margfalt líklegri til að falla fyrir eigin hendi en aðrir.
Lisa Marchiano, sálgreinir, bendir á að sjálfsvíg séu 19 sinnum algengari meðal þeirra sem fóru í gegnum „transferli“ en annarra. Það bendir til þess að læknisfræðileg inngrip hjálpi ekki, segir Lisa. Þetta hefði sjúkraliðinn og grunnskólakennarinn hæglega getað kynnt sér sem hluta af faglegri þekkingu sinni.

Rannsóknir á sjálfsvígum og Cass-skýrslan undirstrika þrjú algjör lykilatriði hvað þetta varðar:
- Sjaldgæfni: Sjálfsvíg meðal barna og unglinga eru, góðu heilli, enn mjög sjaldgæf, jafnvel hjá þeim sem glíma við geð- eða kynbundin vandamál.
- Werther-áhrifin og frásagnir:
Að halda því fram að sjálfsvíg séu óumflýjanleg afleiðing skorts á lyfjameðferð, læknisfræðilegum inngripum eða félagslegri viðurkenningu, eða synjunar um slíkt á sér enga vísindalega stoð; hins vegar skapar það hættulegt smit og væntingar hjá ungu, viðkvæmu fólki.
- Afleiðingar ógnarherferða:
Þegar viðkvæmum unglingum og foreldrum þeirra er ógnað með hugsanlegu sjálfsvígi ef tafarlaus inngrip eru ekki framkvæmd eða fagaðstoð skortir, jafngildir það dauðadómi. Við það skapast óþarfa og skaðleg áhrif í stað þess að veita þeim ró og ítarlegt mat á því sem viðkomandi þarf í raun.
Transhugmyndafræðihópur Síðuskóla virðist ekki hafa áhuga á staðreyndum og íhugun, bara upphrópunum!
Hópnum hefði ekki veitt af, og veitir kannski ekki af, að horfa út fyrir landsteinana til að afla sér þekkingar: Affirmation Generation The Lies of Transgender Medicine
Morgunblaðsgreinin: Gerast Samtökin ’78 brotleg við 99. gr. barnaverndarlaga? | Frettin.is
Höfundur er fyrrverandi dönskukennari við Síðuskóla.