Í umfjöllun AP-fréttastofunnar kemur fram að lest í Fayoum héraði hafi rekist aftan á aðra lest með þeim afleiðingum að önnur lestin fór út af sporinu. Segir að einungis séu um tveir mánuðir síðan lestarslys hafi síðast átt sér stað í nákvæmlega sama héraði.
Forsetinn Abdel-Fattah el-Sissi segir í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum vegna slyssins að hann hafi fyrirskipað skjóta rannsókn á tildrögum þess. Viðbragsaðilar vinni nú á vettvangi þar sem hlúð sé að slösuðum og braki komið af lestarteinum svo hægt sé að hefja áætlunarakstur lesta að nýju.