Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en Hanna Katrín Friðriksson var gestur Páls Magnússonar á Sprengisandi í morgun þar sem hún ræddi gjaldið.
Stjórnvöld í Póllandi segja árásarmanninn sem myrti sex á aðaltorgi Kraká í gær líklega hafa heillast af hugmyndafræði öfgahægrimanna. Lögregla fann þrjú lík á heimili mannsins eftir árásina.
Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að jólaverslun fari vel af stað og á ekki von á því að háir vextir og verðlag muni hafa áhrif á innkaup landsmanna fyrir jólin.
Iceland Airwaves lauk í nótt með tónleikum um alla borg. Fjórir færeyskir rokkarar segja draum hafa ræst að spila á hátíðinni og segja alltof vægt tekið á glæpamönnum sem brjóta á börnum þar í landi.
Í íþróttum heyrum við í þjálfara Njarðvíkur sem er enn án sigurs eftir 5. umferðir í Bónus-deild karla í körfuknattleik. Þá verður farið yfir allt það helsta í enska boltanum þar sem Arsenal er komið með gott forskot á toppi deildarinnar.
Allt þetta og meira til í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.