Í upphafi forsætisráðherraferils Davíðs Oddssonar urðu miklar umbætur og framfarir hér á landi. Má þar nefna upplýsingalög og stjórnsýslulög, auk þess sem Ísland varð hluti af EES. Raunar var Viðeyjarstjórn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins að verulegu leyti mynduð um það að ganga frá aðild að EES. Síðari hluti forsætisráðherraferilsins var ekki eins farsæll og fyrri hlutinn og á forsetaframboðið 2016 fór illa. Feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson gáfu á dögunum út bókina Davíðstíminn þar sem rýnt er í feril Davíðs.
Davíðstíminn: Gott framan af hjá Davíð en ferillinn endaði illa