Minnst fjórir eru látnir og talið að um 88 hafi slasast þegar tvær lestar skullu nærri borginni Giza í Egyptalandi.
Yfirvöld segja að lest sem var á leið frá Giza til borgarinnar Fayoum hafi rekist aftan á aðra lest sem var á leið frá höfuðborginni Kaíró til Aswan.
Abdul Fattah al-Sisi, forseti Egyptalands, vottaði fjölskyldum hinna látnu samúð sína í yfirlýsingu og segir að ríkisstjórn landsins fylgdist grannt með gangi mála. Viðbragðsaðilar hafi verið sendir út til þess að veita aðstoð. Alls er talið að um 72 sjúkrabílar hafi verið sendir á vettvang og að hinir slösuðu hafi verið fluttir á þrjá spítala.
al-Sisi sagði einnig að rannsókn myndi fara fram á orsökum slyssins og að ef einhverjir hefðu sýnt af sér vítavert gáleysi yrðu þeir dregnir til ábyrgðar.