Rúmlega þriðjungur þjóðarinnar, eða um 34%, ber mjög lítið eða fremur lítið traust til stjórnar Landsvirkjunar. Þetta kemur fram í könnun Maskínu sem unnin var fyrir Sprengisand á Bylgjunni. 37% segjast treysta stjórninni í meðallagi en 29% segjast treysta henni mikið eða fremur mikið.
Frumkvæðisrannsókn flýtt
Fyrir helgi samþykkti stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis að hefja frumkvæðisrannsókn á samskiptum Daða Más Kristóferssonar, fjármálaráðherra og fráfarandi forstjóra Harðar Arnarsonar.
Miklar deilur hafa verið á Alþingi um samskiptin en stjórnarandstaðan hefur sakað ráðherra um að hafa sagt ósatt um samskipti sín við fyrirtækið. Daði Már hefur hafnað þessu.
Daði Már hvatti sjálfur nefndina til að athuga öll samskipti vegna uppsagnar Harðar Arnarsonar, fyrrum forstjóra Landsvirkjunar.
Hafði áhyggjur af pólitískum afskiptum
Hörður óttaðist að pólitísk afskipti stjórnar myndu gera fyrirtækið óstarfhæft og vakti fyrst athygli á því sem hann taldi óeðlileg afskipti í nóvember í fyrra. Það var hálfu ári eftir að ný stjórn tók við.
Í minnisblaði sem hann sendi í júní í fyrra lýsti hann yfir áhyggjum af auknum samskiptum milli fjármálaráðuneytis og stjórnar Landsvirkjunar utan aðalfunda. Hætta sé á því að slík samskipti verði túlkuð sem pólitísk afskipti.
Stjórn Landsvirkjunar segist hafa tekið athugasemdir Harðar alvarlega en hafnar óeðlilegum afskiptum.