Breska ríkisútvarpið greinir frá því að þeir Michal Pędziwiatr og Dr Mateusz Wierdak hafi verið að snæða hádegismat með fjölskyldum sínum í miðborg borgarinnar í gær þegar þeir heyrðu byssuskot. Líkt og fram hefur komið létust sex í árásinni sem er rannsökuð sem hryðjuverk.
„Allt í einu kom sonur minn hlaupandi og sagði: „Pabbi, það er verið að skjóta á fólk þarna, fólk fellur til jarðar,“ hefur BBC eftir Pędziwiatr. Hann segir að þegar þeir hafi komið á vettvang hafi þeir veitt bæði árásarmanninum sem og lögreglumönnum aðhlynningu. „Þegar kemur að því að bjarga mannslífum skiptir engu máli hver er hver.“
Þegar skothríðinni linnti segist Pędziwiatr hafa sinnt hinum fórnarlömbunum og byssumanninum á meðan Wierdak hóf að hlúa að lögreglumanninum sem skotinn var í brjóstið í skotbardaganum. „Hann tróð, svo maður tali tæpitungulaust, öllum sárabindunum inn í brjóstið á [lögreglumanninum] og stakk höndunum inn,“ segir læknirinn. „Ef ekki hefði verið fyrir það veit ég ekki hvernig þetta hefði farið, því það var löng bið eftir sjúkrabílnum.“
Hann segist á meðan hafa hringt í sjúkrahús í borginni sem kennt er við Jóhannes Pál páfa II. Þar sé til húsa sérstök hjartaskurðdeild.
„Ég krafðist þess að hann yrði fluttur þangað því að mínu mati átti hann mesta möguleika á að lifa af þar, þar sem voru sérfræðingar í einmitt þessari tegund áverka.“
Samkvæmt pólskum fjölmiðlum er Wierdak þekktur skurðlæknir í Kraká. Að því er BBC hefur eftir þeim er Pędziwiatr yfirlæknir á skurðlækningadeild Háskólasjúkrahússins í Kraká. Fjórar konur og tveir karlar voru á meðal hinna látnu, þar á meðal fjórir pólskir ríkisborgarar, breskur karlmaður og einstaklingur sem er ekki pólskur ríkisborgari en þjóðerni hans hefur enn ekki verið gefið upp.