Málefni Landsvirkjunar hafa verið til umfjöllunar að undanförnu eftir að Hörður Arnarson tilkynnti að hann ætlaði að hætta sem forstjóri. Sagði hann meðal annars að hann hefði ekki verið boðaður á stjórnarfundi. Hann kvaðst þó í kveðjuræðu sinni til starfsfólks skilja sáttur við vinnustaðinn.
Í kjölfarið hefur athyglin í sífellt meira mæli beinst að Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra sem viðurkenndi á Alþingi að hann hafi verið ónákvæmur í svari um fundi sem haldnir voru án Harðar. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis ákvað í kjölfarið að taka málið til skoðunar og kalla eftir gögnum um samskipti ráðherrans og Landsvirkjunar.
Á Sprengisandi í morgun fékk Páll Magnússon þá Trausta Hafliðason, ritstjóra Viðskiptablaðsins, og Hauk Arnþórsson stjórnsýslufræðing í þáttinn til að ræða málið. Í upphafi hans kynnti Páll könnun sem Maskína gerði þar sem spurt var út í traust almennings til stjórnar Landsvirkjunar.
Þar svaraði rúmur þriðjungur því að traustið til stjórnarinnar væri annaðhvort lítið eða mjög lítið.
„Þetta kemur mér ekkert á óvart. Aftur á móti finnst mér margir, og sérstaklega kannski fylgismenn ríkisstjórnarflokkanna, hafa verið að gera svolítið lítið úr þessu máli, að þetta sé einhver stormur í vatnsglasi,“ sagði Trausti á Sprengisandi í morgun.
„Mér fannst það líka endurspeglast í fréttum á RÚV á fimmtudaginn þegar Eiríkur Björn [Björgvinsson, þingmaður Viðreisnar] kemur þar sem starfandi formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og tjáir sig með þeim hætti að honum þyki málið vera ofvaxið og taldi ráðherra hafa gefið ágætis skýringar á málinu,“ sagði Trausti og bætti við að það væri ekki gott veganesti í störf stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að formaður sé búinn að mynda sér slíka skoðun áður en gögn málsins hafi verið kynnt.
„Hissa á ráðuneytinu að gera engan greinarmun á þessu“
Haukur Arnþórsson segir Landsvirkjun vera sameignarfélag og um það gildi önnur lög en þegar um sé að ræða hlutafélag.
„Í þessu formi er algjörlega bannað að eigandinn komi inn á stjórnarfundi, það er bara alveg tekið af,“ sagði Haukur.
Páll spurði þá hvort fjármálaráðherra hefði brotið lög um sameignarfélög samkvæmt sameignarfélagssamningi um Landsvirkjun frá árinu 2012.
„Algjörlega, eigandi má koma inn á svokallaða félagsfundi. Eigandinn getur komið að málinu og jafnvel ríkulegar en í öðrum félagsformum en hann getur ekki komið á stjórnarfundi og ég er hissa á ráðuneytinu að gera engan greinarmun á þessu,“ svarar Haukur.
Þurfti ítrekað að óska eftir gögnum
Trausti segir að þegar Hörður hafi tilkynnt um starfslok sín hafi allar yfirlýsingar frá Brynju Baldvinsdóttur stjórnarformanni og Daða Má fjármálaráðherra verið á þá leið að þarna væri ekkert að sjá.
„Síðan kemur í ljós að auðvitað veit Brynja þetta, búin að vita þetta síðan hún byrjaði þarna í stjórn, en ráðherrann veit það líka því 11. september fær hann minnisblað Harðar. Þegar ég las það þá hugsaði ég að það þyrfti ansi mikið til að Hörður Arnarson setji á blað að hann sé að vara við pólitískum afskiptum af stjórn Landsvirkjunar,“ segir Trausti og bætir við að ef eftirlits- og stjórnskipunarnefnd Alþingis meti afskiptin sem pólitísk þá sé Landsvirkjun í verulegum vandræðum.
Þá greindi Trausti frá fyrirspurnum sínum til Landsvirkjunar en upphaflega var honum neitað um gögn málsins, meðal annars hverjir sátu áður umrædda fundi.
„Ég þurfti að afmarka mig og benda þeim á að þetta væru nú upplýsingar sem þeir birtu sjálfir í stjórnarháttayfirlýsingu ársreiknings í fyrra. Þá sendu þeir mér að sjálfsögðu upplýsingar um hverjir sátu fundina. Viljinn var svo einbeittur að láta ekki nein gögn frá sér að þeir meira að segja höfnuðu upplýsingum sem þeir gera sjálfir opinberar.“
„Pólitískasta stjórn Landsvirkjunar í áratugi“
Haukur segir að svo virðist sem stjórnin og ráðherra hafi ekki áttað sig á að þau þyrftu að standa almenningi skil á því sem skipti máli. Sagði hann málið minna á þegar Gylfi Magnússon, sem líkt og Daði Már var ráðinn sem ráðherra án þess að vera þingmaður, hafi hrökklast frá völdum eins og Haukur orðaði það.
Trausti sagði erfitt að meta hvort málið væri þess eðlis að það leiddi til afsagnar stjórnar eða að ráðherra sparkaði stjórninni.
„Þetta er fagstjórn sem er líklegasta pólitískasta stjórn Landsvirkjunar í áratugi. Menn eru að fela sig á bak við þetta að þetta sé ekki pólitísk stjórn en gleyma því að ráðherrann er með alla þræði. Hann setur reglur, velur valnefndina og velur síðan úr þeim kandídötum sem valnefndin velur.“
„En hvort þetta muni draga þann dilk á eftir sér að stjórnin muni segja af sér eða ráðherrann segja af sér, þá kæmi það mér ekkert á óvart.“
Vill að umboðsmaður Alþingis skoði málið
Þá telur Haukur það veikt að sett sé í hendur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að skoða málið til hlítar.
„Sem er pólitískt valin. Það sem getur gerst er að einhver stjórnarflokkanna svíki eins og gerðist hjá Jóhönnustjórninni, þá var það flokkur sem hét Hreyfingin sem sveik Gylfa. Við sjáum stuðningsmenn stjórnarinnar, og ég tek fram að ég er einn þeirra, að þeir fyrirgefa allt ef um er að ræða þeirra fólk. Það er ekki nógu gott.“
„Þannig að ég mæli með umboðsmanni Alþingis.“