39 til viðbótar særðust í árásunum sem breska ríkisútvarpið fjallar um.
Sjónvarpsstöðin Al Masirah, sem er rekin af Hútum, hefur birt myndskeið þar sem björgunarmenn draga lík úr rústum bygginga í bænum. Meðal þeirra eru ung börn.
Fréttastofan Saba, sem Hútar reka sömuleiðis, segir Sádi-Arabíu hafa staðið að árásunum á laugardag.
Hernaðarbandalagið undir forystu Sádi-Arabíu, sem styður alþjóðlega viðurkennd stjórnvöld í Jemen, hefur ekki tjáð sig um ásakanirnar.
Átökin blossað upp á ný
Stríðið í Jemen hafði að mestu legið niðri síðustu ár en átökin hafa blossað upp á ný í kjölfar stríðsins við Íran.
Vopnahlé tók að liðast í sundur þegar Sádi-Arabar gerðu loftárás á flugvöllinn í Sana til að koma í veg fyrir að írönsk flugvél lenti þar.
Hútar svöruðu með árás á Abha-flugvöll í Sádi-Arabíu og hófu síðar árásir á sádiarabísk skip á Rauðahafi. Sádi-Arabar hafa í auknum mæli nýtt þá siglingaleið til olíuútflutninga í stað Hormússunds.
Harðir bardagar hafa síðan hafist að nýju milli Húta og hersveita ríkisstjórnarinnar í Jemen með stuðningi Sádi-Arabíu.
Á föstudag létust að sögn þrjátíu í árás á markað í Taiz-héraði, þar sem hörðustu bardagarnir hafa farið fram að undanförnu. Hútar saka Sádi-Araba um árásina en stjórnarherinn segir aftur á móti Húta hafa skotið eldflaug á markaðinn.
Meira en 1.600 fallið
Sameinuðu þjóðirnar segja meira en 1.600 hafa fallið og yfir 300 þúsund hafa hrakist frá heimilum sínum frá því að bardagar hófust að nýju.
Sádi-Arabar hafa ítrekað gert loftárásir á stöðvar Húta en Hútar hafa á móti skotið eldflaugum að Sádi-Arabíu, þar á meðal flugvöllum og olíumannvirkjum.
Nokkrum klukkustundum áður en árásin var gerð á al-Shariyah sagðist hernaðarbandalag Sádi-Araba hafa skotið niður eldflaug sem stefndi á höfuðborgina Ríjad.
Orkumálaráðuneyti Sádi-Arabíu sagði síðar að sprengjubrot hefðu lent á turni olíurisans Aramco í tilraun til árásar. Minniháttar skemmdir urðu á byggingunni.