Ríkissaksóknari Póllands tilkynnti í morgun að skotárás í Kraká í gær væri rannsökuð sem hryðjuverk. Í tilkynningu hans segir að árás sem þessi, morð á sex manns með byssu og tilraun til að drepa marga fleiri, þar á meðal lögreglumenn, falli undir skilgreiningu á hryðjuverki.
Torgið þar sem árásin var framin er enn girt af og fólk hefur komið í miðbæinn síðan í gær og lagt kerti til minningar um þau sem biðu bana. Ódæðisverkið var framið í gamla miðbænum sem er vinsæll bæði meðal borgarbúa og ferðamanna. Yfirvöld hafa lýst yfir tveggja daga þjóðarsorg.
Maðurinn ók inn á torg í gamla miðbænum í Kraká um miðjan dag í gær og hóf að skjóta tilviljanakennt á fólk. Hann drap sex manns. Þrír þeirra voru Pólverjar, einn var Breti og enn á eftir að bera kennsl á tvo. Maðurinn særði sextán, þar á meðal tvo lögreglumenn. Annar þeirra er alvarlega særður.
Lögregla skaut árásarmanninn á vettvangi. Hann er á sjúkrahúsi og hefur gengist undir nokkrar aðgerðir. Við leit á heimili hans fundust foreldrar hans og systir látin og samkvæmt lögreglu virðist sem þau hafi verið skotin. Þar fannst einnig töluvert af byssum. Nokkrar fundust einnig í bíl árásarmannsins.
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, hefur þakkað lögreglumönnum á vettvangi fyrir snör viðbrögð.
Árásarmaðurinn, sem er 24 ára og pólskur ríkisborgari, er með skotvopnaleyfi og var í skotfélagi ásamt föður sínum. Hann var með grímu, klæddur herfatnaði og í skotheldu vesti þegar hann framdi ódæðið. Fyrir árásina átti hann ekki sakarferil að baki.
Á blaðamannafundi stjórnvalda í gærkvöld sagði innanríkisráðherrann vísbendingar um að maðurinn hefði aðhyllst öfga-hægri hugmyndafræði. Það hefði þó ekki verið staðfest.