Jón Tryggvi Þórsson, eigandi verslunarinnar, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Hann segir tjónið hlaupa á 20 til 30 milljónum. Þjófnaðurinn hafi verið þaulskipulagður og segir hann „mikla fagmenn“ hafa verið þar á ferð.
„Við erum búin að sjá myndir af þeim hérna inni í Mjóddinni. Þeir hafa byrjað um tólfleytið og brutu rúðu og tóku allt úr sýningarglugganum sem var verðmætt. Þeir tóku allt gull en skildu annað eftir.“
Hann tekur fram að mennirnir hafi alls farið þrjár ferðir frá versluninni og út í bifreið sem beið þeirra fyrir utan.
„Þeir brutu allt og brömluðu. Þetta var greinilega mjög skipulagt því ég er með öryggisskynjara hér og þeir náðu að komast fram hjá honum,“ segir hann en búið er að tilkynna þjófnaðinn til lögreglunnar.
„Ég er nýtekinn við og er búinn að vera undirbúa verslunina í marga mánuði fyrir jólin og síðan fær maður þetta kjaftshögg. Þetta er ekki beint besta tímasetningin.“