Odom spilaði lengi með körfuboltafélaginu Los Angeles Lakers en öðlaðist heimsfrægð þegar hann var giftur Khloé Kardashian og var tíður gestur á skjánum í raunveruleikaseríum Kardashian-fjölskyldunnar. Hann glímdi mjög opinberlega við mikinn fíknivanda sem dró hann næstum því til dauða árið 2015 og í kjölfarið fór hann í gegnum mikla fjárhagsörðugleika.
Í október síðastliðnum tilkynnti Odom fylgjendum sínum á Instagram að hann ætlaði að stofna OnlyFans og varð fyrsta NBA-stjarnan til að gera slíkt. Samkvæmt heimildum æsifréttamiðilsins PageSix græddi hann rúmlega sex milljónir á fyrstu átta dögunum á miðlinum.
„Viðbrögðin við OnlyFans aðgangnum mínum hafa verið stórkostleg. Ég er að ná að tengjast aðdáendum mínum á glænýjan máta, byggja upp eitthvað stórt og nú er ég að leita að nýjum íþróttamönnum til að koma með mér í þetta. Það er alvöru tækifæri hérna og ég er rétt að byrja,“ sagði Odom við PageSix.