Það er sjaldan lognmolla í kringum hertogaynjuna Meghan Markle og fjölskyldu hennar og skiptir þá engu máli hvort horft er til fjölskyldu hennar sjálfrar í Bandaríkjunum eða tengdafjölskyldu hennar í Buckingham-höll.Að þessu sinni er það faðir Meghan, Thomas Markle, sem hefur valdið fjaðrafoki eftir að sonur hans steig fram og sagðist hafa fundið barnaníðsefni á gömlum raftækjum. Skömmu síðar bárust fréttir um að barnaníðsefni hefði sömuleiðis fundist í geymslum sem Thomas hafði á leigu í Los Angeles og í Mexíkó.
Móðir Meghan Markle aðstoðar FBI við rannsókn á hrottalegum myndum