Snögg leit á internetinu að myndum af Angelu Merkel, fyrrverandi kanslara Þýskalands, sýnir að hún var – og er – hrifin af bláum lit. Þegar málverkið af henni var frumsýnt í Bode-safninu í janúar, viðurkenndi hún líka fúslega að valið á jakka fyrir myndina hefði ekki verið nein tilviljun.
„Það var vissulega meðvituð ákvörðun,“ sagði Merkel við það tækifæri.
Þúsundir gesta hafa komið í safnið beinlínis til að berja þetta málverk augum; svo margir reyndar að stjórnendur Bode ákváðu nýlega að það myndi hanga uppi þremur mánuðum lengur en upphaflega var gert ráð fyrir, til 3. janúar á næsta ári.
Listamaðurinn sem málaði Merkel heitir Jérémie Queyras, ungur þýsk-franskur listamaður, og þótt fólk hafi flykkst í Bode-safnið til að sjá verkið, þá hefur það fengið misjafna dóma meðal gagnrýnenda.
Í grein sem birtist um málverkið af Merkel í bandaríska dagblaðinu New York Times í dag, er því gert skóna að vinsældir verksins segi eitthvað til um tíðarandann í Þýskalandi þessa dagana.
Merkel lét af embætti árið 2021 og á þeim tíma voru 75 prósent Þjóðverja ánægð með störf hennar, þótt margar af ákvörðunum hennar hefðu á sínum tíma verið umdeildar; núverandi kanslari, Friedrich Merz nýtur öllu minni vinsælda – aðeins ellefu prósent kjósenda eru sáttir við hann og störf hans.
„Ég held að hún [Merkel] sé að verða að eins konar goðsögn, tákni um stöðugleika,“ sagði einn viðmælenda New York Times í safninu fyrir nokkrum vikum.