„Markmiðið er hafa meiri stjórn á vexti gagnavera og tryggja að við fáum þau fyrirtæki sem við þurfum á að halda,“ sagði Torgeir Michelsen, ráðherra stafrænna mála á blaðamannafundi í Osló í morgun, þar sem áform norskra stjórnvalda voru kynnt.
Þannig stendur til að herða reglur um leyfisveitingar og leggja áherslu á að gagnaver þjóni samfélagslegum tilgangi; þau sem bjóða heim vinnslu á rafmyntum falli ekki í þann flokk. „Við viljum ekki hvaða gagnaver sem er í Noregi,“ sagði Michelsen sem boðar strangari reglur sem taka eiga gildi næsta haust.
115 gagnaver eru nú starfrækt í Noregi, samkvæmt tölum frá DataCenter Map; norsk stjórnvöld segja að orkunotkun í þessum geira hafi numið 3.2 terawattstundum í fyrra - fjórum sinnum meira en fyrir þremur árum.
Tímabundið bann á nýjar tengingar
Hluti af þessum aðgerðum sem kynntar voru í morgun er að setja tímabundið bann á að gagnaver sem eru í byggingu geti pantað (eða tekið frá) það rafmagn sem fyrirtækin þurfa á að halda þegar gagnaverin eru komin í notkun. Statnett, norska orkudreifingarfyrirtækið (sambærilegt og Landsnet) tilkynnti þetta í morgun.
Norsk stjórnvöld vilja ennfremur ræða við fyrirtæki í þessum geira um að þau taki þátt í þeim fjárfestingum sem þarf til að þjóna orkuþörf þeirra, og kanni einnig hvort fyrirtækin geti á einhvern hátt uppfyllt sínar orkuþarfir upp á eigin spýtur, að því fram kemur í umfjöllun NRK um þetta mál.
Norsk hagsmunasamtök í þessum geira hafa gagnrýnt þessi áform og benda á að þau hafi slæm áhrif á áhuga fjárfesta að halda áfram að setja fé í þessa ört vaxandi grein.
„Í hverjum mánuði er verið að fjárfesta fyrir milljarða norskra króna í gagnaverum í Noregi,“ segir Reynir Jóhannesson, framkvæmdastjóri Norsk Datasenterindustri í viðtali við NRK. „Meirihluti þessa fjármagns fer til þjónustuaðila, þannig að þetta snýst um byggingarverkamenn, rafvirkja og verkfræðinga um allt land; þeir eiga skilið að vita hvaða reglur gilda, bæði til lengri og skemmri tíma,“ segir Reynir.