Tugi milljóna vantar inn í hafnarsjóð Vesturbyggðar vegna þess að Arnarlax hefur ekki greitt nein eldisgjöld á þessu ári. Lög eru óskýr og sveitarfélög og eldisfyrirtæki ósammála um hvað þjónustan eigi að kosta.
Arctic Fish borgar uppsett verð en Arnarlax ekki
Eldislaxi er landað til slátrunar á þremur stöðum á landinu en höfnum gengur misjafnlega að innheimta eldisgjald.
Arctic Fish slátrar í Bolungarvík og borgar fyrir hvert landað kíló samkvæmt samningum um nýja sláturhúsið þar. Í Múlaþingi hefur höfnin á Djúpavogi fengið einhver eldisgjöld greidd frá Kaldvík á árinu en ekki öll. Viðræður um upphæðir ganga vel að sögn hafnar- og sveitarstjóra.
Sömu sögu er ekki að segja í Vesturbyggð. Höfnin á Bíldudal hefur engin eldisgjöld fengið á þessu ári því ekki semst við Arnarlax um gjöldin.
„Viðræður ganga ekki neitt. Þetta er komið inn í lög þannig að heimildin er til staðar í lögum en hún er mjög óskýr. Hún setur þetta algjörlega í hendurnar á höfnunum að reikna hvað þjónustan kostar. Og við erum svo sem alveg búin að því en það er svo auðvelt að rengja það af því að lögin eru ekki nógu skýr,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar.
Árlöng barátta fyrir nothæfum lögum
Vesturbyggð vakti fyrst athygli stjórnvalda á málinu árið 2010 og sagði að heimild til að innheimta aflagjald af löndun úr sjókvíaeldi væri óskýr. Það reyndist rétt því Arnarlax mótmælti gjaldskránni og safnaði skuld við höfnina. Vesturbyggð tapaði svo innheimtumáli. Niðurstaða dómstóla var að eldisfiskur væri ekki sjávarafli og ekki mætti innheimta aflagjöld.
Eftir dóminn tóku stjórnvöld við sér og var ákvæði um sérstakt eldisgjald bætt inn í hafnarlög. Það virðist hafa misheppnast því ekkert í lögunum segir til um hve hátt gjaldið skuli vera. Ekki var farið að ráðum umsagnaraðila sem bentu á að skýrt þyrfti að vera hvernig gjaldið skyldi reiknað. Svo virðist sem treyst hafi verið á að samkomulag næðist milli hafna og eldisfyrirtækja um einhvers konar þjónustugjald.
„Við höfum reiknað það út hvað þjónustan kostar og við erum búin að kynna það fyrir fyrirtækinu sem er að landa eldislaxi. En þeir bara meta það með allt öðrum hætti. Þannig að það ber svo mikið á milli. Og ég sé ekki fram á það að það sé hægt að ná einhverjum samningum,“ segir Gerður.
Stefnir í taprekstur hjá höfnum Vesturbyggðar
Nú stendur til að bæta úr þessu. Áform um að skýra gjaldtöku í hafnalögum eru á þingmálaskrá en Gerður segir að höggva þurfi á hnútinn sem fyrst. „Þeir hafa ekki greitt eldisgjöld á þessu ári til hafnanna og það munar um minna þannig að hafnirnar eru ekki að bera sig. Ef þessar tekjur koma ekki inn á þessu ári þá er bara hafnarsjóður rekinn í tapi og þá er ekki víst að við getum farið í þær framkvæmdir sem áformað var að fara í,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar.