Breski grínistinn og leikarinn Russell Brand hefur verið dæmdur í tíu ára og sex mánaða fangelsi fyrir nauðgun og þrjú kynferðisbrot gegn fjórum konum. Dómurinn var kveðinn upp við Southwark-dómstólinn í Lundúnum í dag.Brand, sem er 51 árs, var fundinn sekur um brotin á fimmtudag eftir umfangsmikil réttarhöld. Brotin voru framin á árunum 2004 til 2009, þegar Brand var á meðal þekktustu skemmtikrafta Bretlands.BBC fylgdist með dómsuppkvaðningunni í beinni útsendingu.
Russell Brand dæmdur í tíu og hálfs árs fangelsi