„Þetta er svo­lítið illa tíma­sett hjá þeim“ - Vísir

„Þetta er svo­lítið illa tíma­sett hjá þeim“ - Vísir

„Þetta er svo­lítið illa tíma­sett hjá þeim“ - Vísir

Þetta segir Jón Tryggvi Þórsson, eigandi Gullsmiðsins í Mjódd, í samtali við fréttastofu. Brotist var inn í verslunina í Breiðholti í Reykjavík um miðnætti í nótt. Allavega tveir menn fóru þar um í skjóli nætur, brutu sér leið inn í verslunina og tóku þar allt gull og verðmætustu skartgripina ófrjálsri hendi. Tjónið nemur um 30 milljónum króna að sögn eigandans.

 Þegar fréttastofu bar að garði var eigandinn ásamt starfsfólki búinn að hreinsa upp urmul af glerbrotum sem voru á víð og dreif um verslunina. Einnig var búið að loka fyrir sýningargluggann þar sem innbrotsþjófarnir komu inn. Viðtalið má berja augum í spilaranum hér að neðan.

„Þeir hafa komið hérna einhverjir tveir aðilar, það náðist myndband af þeim, þeir komu um tólfleytið í nótt. Þeir brutu hérna rúðuna, hér var útsýnisgluggi með fullt af skarti. Þeir stálu því og fóru til baka en sáu sér hag í að koma aftur og enduðu á því að fara inn í alla búðina. Þeir brutu allt og brömluðu og stálu öllu gullinu.“ 

Hann segir verknaðinn hafa verið þaulskipulagðan. Öryggiskerfið hafi af einhverjum ástæðum ekki farið í gang.

„Það er það sem við erum að reyna að skilja núna. Þeir höfðu þann tíma sem þeir vildu til að dúlla sér hérna inni í búðinni. Ég fæ ekki að sjá myndbandið sjálfur en mér skilst að þeir hafi verið tveir. Þeir sáust síðast klukkan hálf tvö í nótt,“ segir hann en þeir hafi því verið í um 90 mínútur allt í allt í versluninni.

Hann stefnir á að reyna að opna verslunina sem fyrst og selja það sem eftir er. Vonir eru bundnar við að geta opnað á morgun enda fer nú í hönd stærsta verslunartímabil ársins. Stórir tilboðsdagar eru fram undan og fer að líða að jólum.

„Þetta er korter fyrir jól sem er annasamasti tími ársins. Þetta er svolítið illa tímasett hjá þeim. Þetta er allra versti tíminn. Við erum bara í því að hreinsa og síðan þurfum við að fá nýtt gler,“ segir hann  og telur að það verði vandkvæðum bundið að tryggja sér nýtt gull til að geta sett nýja gripi í sölu.

Hann telur að innbrotsþjófarnir hafi skriðið eftir gólfinu til að koma í veg fyrir að virkja nemann sem setur öryggiskerfið af stað.

„Þeir skriðu síðan aftur út um gluggann. Þeir hafa greinlega haft mikið vit á þessu. Þetta eru svona prófessjonal gæjar.“

Hann biðlar til fólks að vera með augun opin fyrir þeim sem reyna að selja verðmæti úr gulli. Allar ábendingar til hans eða lögreglunnar séu vel þegnar.

Jón er í raun nýbúinn að koma sér fyrir en hann tók við versluninni í vor. 

„Ég lærði hérna fyrir 36 árum. Ég tók við og ákvað að eyða seinni árunum í gullinu. Þetta kemur. Maður lætur þetta ekki slá sig út af laginu. Maður verður bara að bíta á jaxlinn og finna einhverja leið til að halda áfram.“

Verslunin sé tryggð fyrir tjóni en hann kveðst ekki vongóður um að fá það að fullu bætt. 

„Ég uppgötvaði þetta bara með morgunbollanum. Maður verður fyrst smá dofinn en síðan rennur þetta upp hægt og rólega.“

#hjá #illa #svolítið #tímasett #þetta

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262960625d/-thetta-er-svolitid-illa-timasett-hja-theim-

📰 Aðrar fréttir

Kostar nærri hálfa milljón að flytja fanga frá Akureyri
📅 10.11.2026 👁️ 1
Kostar nærri hálfa milljón að flytja fanga frá Akureyri
Í skriflegu svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu segir að ekki sé hægt að opna fangelsið á Akureyri á nýjan leik án umfangsmikilla o...
Davíðstíminn: Hrunið kallaði það versta fram í Davíð – en hann átti líka sínar góðu hliðar
📅 10.11.2026 👁️ 1
Davíðstíminn: Hrunið kallaði það versta fram í Davíð – en hann átti líka sínar góðu hliðar
Í hruninu gekk mikið á, vinabönd brustu og komust jafnvel á aftur og ýmsir sýndu alls ekki sínar bestu hliðpar. Meðal þeirra var Davíð Oddsson, þávera...
Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka - Vísir
📅 10.11.2026 👁️ 1
Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka - Vísir
Jarðskjálftavirkni á svæðinu er lítil en líklegasta sviðsmyndin er áfram sú að kvika hlaupi frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem gæti leitt ...
Kristersson fær viku til að mynda stjórn
📅 10.11.2026 👁️ 0
Kristersson fær viku til að mynda stjórn
Ulf Kristersson, leiðtogi Moderaterna í Svíþjóð, hefur fengið lengri frest til að mynda nýja ríkisstjórn. Upphaflega átti hann að gefa skýrslu á föstu...
Mynd­efni af á­tökunum komið að góðum notum - Vísir
📅 10.11.2026 👁️ 1
Mynd­efni af á­tökunum komið að góðum notum - Vísir
Þetta segir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi. Rannsók...
Hvernig nær maður að elska sjálfan sig á ný?
📅 10.11.2026 👁️ 1
Hvernig nær maður að elska sjálfan sig á ný?
Þegar Hlín vaknar skelþunn á miðjum laugardegi rifjast upp fyrir henni að hún á von á fimm bláókunnugum lesbíum í mat um kvöldið. Hlín er að skilja vi...
Hafnaði yfir hundrað beiðnum um við­töl - Vísir
📅 10.11.2026 👁️ 2
Hafnaði yfir hundrað beiðnum um við­töl - Vísir
Þetta kemur fram í svari forsætsráðuneytisins við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem óskaði eftir upplýsingum ...
Inside devastated frontline city of Slovyansk that Russia wants Ukraine to give up
📅 10.11.2026 👁️ 1
Inside devastated frontline city of Slovyansk that Russia wants Ukraine to give up
The BBC gains rare access to a specialist drone unit defending the eastern city of Slovyansk from heavy Russian fire.
Inside devastated front-line city of Slovyansk that Russia wants Ukraine to give up

Lögreglan leitar að manni
📅 10.11.2026 👁️ 2
Lögreglan leitar að manni
Lögreglan á Vesturlandi óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd. Það er vegna rannsóknar á máli.„Lögreglan á Vesturlandi óskar eftir að...
Huntingdon train attack driver had '10 seconds' to change line
📅 10.11.2026 👁️ 0
Huntingdon train attack driver had '10 seconds' to change line
Andrew Johnson tells jurors he heard over the intercom "'there's a knifeman stabbing people'".
Dómstóll götunnar hafi þegar sakfellt Írisi Helgu
📅 10.11.2026 👁️ 1
Dómstóll götunnar hafi þegar sakfellt Írisi Helgu
Ákæruvaldið rannsakaði gögn í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur ekki til þaula, að mati Helgu Völu Helgadóttir verjanda Írisar Helgu. Hún er sökuð um u...
The Canary Islands is quickly becoming a year-round fishing destination
📅 10.11.2026 👁️ 1
The Canary Islands is quickly becoming a year-round fishing destination
The Canary Islands are a premier destination for maritime tourism and sports fishing. Volcanic drop-offs, warm winds, and nutrient-rich waters provide...
Æfa á ný sprengjueyðingu hér á landi - Vísir
📅 10.11.2026 👁️ 2
Æfa á ný sprengjueyðingu hér á landi - Vísir
Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að æfingin, sem mun ljúka í lok næstu viku, fari að mestu fram innan öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli...
„Hún er gjarnan bara eitthvað að bulla“ – Saksóknari vill Írisi Helgu í 5-6 ára fangelsi
📅 10.11.2026 👁️ 1
„Hún er gjarnan bara eitthvað að bulla“ – Saksóknari vill Írisi Helgu í 5-6 ára fangelsi
Saksóknari krefst fimm til sex ára fangelsis yfir Írisi Helgu Jónatansdóttur, en verjandi hennar krefst sýknu af öllum ákæruliðum. Málflutningur fór f...
Eftirlýstur Serbi með annan fótinn á Íslandi í áratug
📅 10.11.2026 👁️ 1
Eftirlýstur Serbi með annan fótinn á Íslandi í áratug
Serbneskur karlmaður sem situr í gæsluvarðhaldi vegna nær tveggja áratuga gamallar írskrar handtökuskipunar hefur haft annan fótinn á Íslandi í áratug...
Mun lík­lega ekki horfa á þættina - Vísir
📅 10.11.2026 👁️ 2
Mun lík­lega ekki horfa á þættina - Vísir
Hinn 37 ára Radcliffe, sem lék í átta kvikmyndum um Harry Potter á árunum 2001 til 2022, var staddur á frumsýningu Netflix-teiknimyndarinnar Steps í N...
Lög­reglan leitar að manni - Vísir
📅 10.11.2026 👁️ 2
Lög­reglan leitar að manni - Vísir
Lögreglan á Vesturlandi óskar eftir því að ná tali af manninum á myndinni hér fyrir ofan. Það varði rannsókn embættisins.
Skýlir sér bak við her­menn og Trump - Vísir
📅 10.11.2026 👁️ 3
Skýlir sér bak við her­menn og Trump - Vísir
Hann gaf til kynna að með því að reyna að ákæra sig væri verið að reyna að ákæra bandaríska hermenn, sem væru hetjur. Þá tók Hegseth fram nokkrum sinn...
Hegseth segir fyrirhugaða kæru farsakennda
📅 10.11.2026 👁️ 2
Hegseth segir fyrirhugaða kæru farsakennda
Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir að tilraun flokksfélaga síns til að ákæra sig til embættismissis sé pólitísk sýndarmennska. Hún ha...
Svarthöfði skrifar: Pólitískir varðhundar
📅 10.11.2026 👁️ 3
Svarthöfði skrifar: Pólitískir varðhundar
Svarthöfði játar fúslega að í seinni tíð hefur áhuginn á að fylgjast með Silfrinu á mánudagskvöldum í Ríkisútvarpinu daprast. Þó eru á því undanteknin...
Haukur vill þrjár milljónir frá leigubílstjóranum sem barði hann með spýtu
📅 10.11.2026 👁️ 2
Haukur vill þrjár milljónir frá leigubílstjóranum sem barði hann með spýtu
Mohamad Weti, sextugur maður frá Sýrlandi, sem hefur búið á Íslandi síðan árið 2016, hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás. Er honum gefið a...
Borgi sig að herða lofts­lagsað­gerðir frekar en að greiða fyrir van­efndir - Vísir
📅 10.11.2026 👁️ 1
Borgi sig að herða lofts­lagsað­gerðir frekar en að greiða fyrir van­efndir - Vísir
Ísland mun ekki standast skuldbindingar sínar gagnvart Parísarsamkomulaginu og Evrópusambandinu fyrir árið 2030. Þessu er slegið föstu í nýrri stöðuma...
Vilja hagsmunaskráningu lykilstarfsmanna í Húnaþingi
📅 10.11.2026 👁️ 3
Vilja hagsmunaskráningu lykilstarfsmanna í Húnaþingi
Ekki er óþekkt að kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum þurfi að tilgreina sína fjárhagslegu hagsmuni í hagsmunaskrá. Engin lög eru þó um slíkt og hafa ...
Atvinnuleysi jókst um 0,3%
📅 10.11.2026 👁️ 3
Atvinnuleysi jókst um 0,3%
Skráð atvinnuleysi í október var 4,3% samkvæmt gögnum Vinnumálastofnunar sem birt voru í dag. Atvinnuleysi jókst því um 0,3% milli mánaða en meðalfjöl...
Fólk trylltist á Fólki - Vísir
📅 10.11.2026 👁️ 3
Fólk trylltist á Fólki - Vísir
Góðir gestir mættu og má þar nefna Þuru Stínu, sem er nýr listrænn stjórnandi HönnunarMars, Siggu Soffíu dansara, Auði Övu Ólafsdóttur rithöfund, Sigr...
Luxury superyacht costing €700,000 a week docks in Lanzarote
📅 10.11.2026 👁️ 3
Luxury superyacht costing €700,000 a week docks in Lanzarote
A luxury superyacht available to hire for an eye-watering €700,000 a week has arrived in Lanzarote, attracting attention as it sits in the port of Arr...
Höfundur Hniksins vill skola leðjuna úr stjórnkerfinu
📅 10.11.2026 👁️ 3
Höfundur Hniksins vill skola leðjuna úr stjórnkerfinu
„Ef Satan hefur gert mjög vonda áætlun fyrir mannkynið felur hún í sér leðju,“ segir Cass R. Sunstein, lagaprófessor við Harvard og meðhöfundur metsöl...
„Rússar eru ekki bestu vinir okkar“
📅 10.11.2026 👁️ 3
„Rússar eru ekki bestu vinir okkar“
Þríhliða viðræðum Úkraínumanna, Rússa og Bandaríkjamanna um frið í Úkraínu, sem hófust í Abú Dabí í morgun, er lokið í dag. Þeim verður fram haldið á ...
Hinn á­kærði var einnig sjúk­lingur á spítalanum - Vísir
📅 10.11.2026 👁️ 1
Hinn á­kærði var einnig sjúk­lingur á spítalanum - Vísir
Þetta herma heimildir Vísis. Þær herma einnig að starfsmenn Landspítalans hafi kallað lögreglu til vegna háttsemi mannsins. Í ákæru á hendur manninum,...
Guðjón Ragnar Jónasson skrifar: Skólinn er hornsteinn í héraði
📅 10.11.2026 👁️ 2
Guðjón Ragnar Jónasson skrifar: Skólinn er hornsteinn í héraði
Mynd Byggðamál og efling byggðar hafa mér löngum verið hu
Myrti konu með öxi og sagði að allir kristnir eigi að deyja
📅 10.11.2026 👁️ 2
Myrti konu með öxi og sagði að allir kristnir eigi að deyja
Francisca Jiménez Cortés, 52 ára, lést 6. nóvember eftir sjö mánuði á sjúkrahúsi í kjölfar axarárásar í Montefrío á Spáni. Maðurinn sem grunaður er um...
Fjórir menn ákærðir fyrir hættulega líkamsárás í Austurstræti
📅 10.11.2026 👁️ 2
Fjórir menn ákærðir fyrir hættulega líkamsárás í Austurstræti
Fjórir karlmenn á aldrinum 22 til 24 ára hafa verið ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás utandyra við Austurstræti 22 í Reykjavík, aðfaranót...
Fjölgar í hópi grunaðra um stórfellda líkamsárás
📅 10.11.2026 👁️ 2
Fjölgar í hópi grunaðra um stórfellda líkamsárás
Sex hafa stöðu grunaðra í rannsókn lögreglu á stórfelldri líkamsárás í Reykjanesbæ í byrjun október. Rannsókn miðar vel og búið er að hafa uppi á öllu...
Verjandi Írisar Helgu sendi dómara skýr skila­boð - Vísir
📅 10.11.2026 👁️ 2
Verjandi Írisar Helgu sendi dómara skýr skila­boð - Vísir
Aðalmeðferð málsins lauk fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag með málflutningi sækjanda og verjanda í málinu. Fram kom í morgun að ákæruvaldið krefst fim...
Arrests made in Mohamed Al Fayed probe in France, police say
📅 10.11.2026 👁️ 1
Arrests made in Mohamed Al Fayed probe in France, police say
The Ritz hotel in Paris, which is still owned by the Al Fayed family, is one of the properties searched by police.
Varað við hvassviðri suðaustanlands
📅 10.11.2026 👁️ 3
Varað við hvassviðri suðaustanlands
Veðurstofan og Vegagerðin vara við hvassviðri um landið suðaustanvert í nótt og á morgun. Veðurstofan varar við hvössum norðvestan vindstrengjum á Aus...
Ein­hleypir geti sótt saman um tæknifrjógvun - Vísir
📅 10.11.2026 👁️ 2
Ein­hleypir geti sótt saman um tæknifrjógvun - Vísir
Eins og lögin eru í dag þurfa þeir sem ætla saman í tæknifrjógvun að vera annaðhvort giftir eða í skráðri sambúð. Verði frumvarpið að lögum gæti einhl...
Óttast öng­þveiti í við­kvæmri náttúru - Vísir
📅 10.11.2026 👁️ 3
Óttast öng­þveiti í við­kvæmri náttúru - Vísir
Til stendur að innheimta nýtt náttúru- og innviðagjald af erlendum ferðamönnum sem hyggjast skoða Geysi, Gullfoss eða Þingvelli. Verði frumvarp innvið...
Telur vantraust á efnahagskerfinu geta torveldað vaxtalækkanir
📅 10.11.2026 👁️ 3
Telur vantraust á efnahagskerfinu geta torveldað vaxtalækkanir
Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur, dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík, segir mikið vantraust ríkjandi gagnvart efnahagskerfinu...
ESB hættir við áform um að gera hatursorðræðu að sérstökum glæp – ágreiningur um tjáningarfrelsi
📅 10.11.2026 👁️ 3
ESB hættir við áform um að gera hatursorðræðu að sérstökum glæp – ágreiningur um tjáningarfrelsi
ESB hættir við áform um að gera hatursorðræðu að sérstökum glæp – ágreiningur um tjáningarfrelsi Fréttin10. nóvember 2026Erlent, Evrópusambandið, Hatu...
Skjálfti af stærðinni 4,5 í Bárðarbungu
📅 10.11.2026 👁️ 3
Skjálfti af stærðinni 4,5 í Bárðarbungu
Stór skjálfti reið yfir í Bárðarbungu klukkan 13:37 í dag. Hann var af stærðinni 4,5 og engir eftirskjálftar hafa fylgt þegar þetta er skrifað. Þá haf...
Lög­reglu­maður lést í sprengingu eftir skot­á­rás - Vísir
📅 10.11.2026 👁️ 3
Lög­reglu­maður lést í sprengingu eftir skot­á­rás - Vísir
Sprengjan sprakk þegar lögregla og sprengjusveit brást við útkalli vegna skotárásar í blokk í Oviedo í Astúríashéraði á Norður-Spáni snemma í morgun. ...
David Walliams sakaður um óviðeigandi hegðun gagnvart ungum konum
📅 10.11.2026 👁️ 2
David Walliams sakaður um óviðeigandi hegðun gagnvart ungum konum
Margar konur hafa ásakað breska grínistann og barnabókahöfundinn David Walliams um að hafa nýtt sér frægð sína til að stofna til kynferðislegs samband...
Áróður í leik- og grunnskólum – hvert er hlutverk skólans samkvæmt íslenskum lögum
📅 10.11.2026 👁️ 2
Áróður í leik- og grunnskólum – hvert er hlutverk skólans samkvæmt íslenskum lögum
Áróður í leik- og grunnskólum – hvert er hlutverk skólans samkvæmt íslenskum lögum Fréttin10. nóvember 2026Helga Dögg Sverrisdóttir, Innlent, Skólamál...
Jónas heldur ekki vatni yfir Daða og Sinfó - „Steikt ýsa með sítrónupipar getur verið góð“
📅 10.11.2026 👁️ 3
Jónas heldur ekki vatni yfir Daða og Sinfó - „Steikt ýsa með sítrónupipar getur verið góð“
Óhætt er að segja að hinn orðheppni og hispurslausi tónlistargagnrýnandi Jónas Sen hafi verið afar ánægður með tónleika Daða Freys Péturssonar og Sinf...
Telur dánaraðstoð í Kanada komna út fyrir öll velsæmismörk eftir að faðir hans ákvað að deyja
📅 10.11.2026 👁️ 2
Telur dánaraðstoð í Kanada komna út fyrir öll velsæmismörk eftir að faðir hans ákvað að deyja
Er réttlætanlegt að svipta aðra manneskju lífi ef hún kærir sig ekki um að lifa lengur eða vill fá að deyja með reisn á eigin forsendum? Á þessu eru s...
Þegar Trölli stal hjörtum áhorfenda
📅 10.11.2026 👁️ 3
Þegar Trölli stal hjörtum áhorfenda
Mynd Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi söngleikinn Þegar Trölli stal jólunum, sem
Bókaspjall: Þegar vináttan brestur
📅 10.11.2026 👁️ 2
Bókaspjall: Þegar vináttan brestur
Vinátta – sönn vinátta – er jafnfágæt og hún er nauðsynleg sálarheill manna. Þennan boðskap má lesa út úr nýrri skáldsögu Sigurjóns Magnússonar, Þegar...
Sardinískt vín, ítalskt bíó og bolti fyrir for­eldrana - Vísir
📅 10.11.2026 👁️ 3
Sardinískt vín, ítalskt bíó og bolti fyrir for­eldrana - Vísir
Blaðaðamaður Vísis ræddi við skipuleggjendur Ítalskra kvikmyndadaga, kvikmyndafræðinginn Kolbein Rastrick og verkefnastjórann Gaiu Alba. Hvernig kom þ...