Reglugerð um velferð svína tók gildi árið 2014 og fengu svínabændur rúman áratug til að laga aðbúnað dýranna að nýjum kröfum. Þær snúa meðal annars að lausagöngu svína, stærð stía og legurými.
Fresturinn átti að renna út 1. janúar 2025 en Bjarni Benediktsson, sem gegndi embætti matvælaráðherra í rúma tvo mánuði eftir að Sjálfstæðisflokkurinn sleit ríkisstjórnarsamstarfinu, undirritaði í desember 2024 reglugerðarbreytingu sem heimilaði Matvælastofnun að veita framleiðendum viðbótarfrest til 1. janúar 2028.
Bændasamtök Íslands höfðu óskað eftir enn lengri fresti, eða til ársins 2030. Í erindi samtakanna til ráðuneytisins kom fram að skortur á fjármagni og erfiðleikar við að fá leyfi fyrir nýjum byggingum hefðu einkum staðið í vegi fyrir því að svínabændur gætu uppfyllt kröfur reglugerðarinnar fyrir árið 2025. Þetta er rakið í skýrslu atvinnuvegaráðherra í janúar á þessu ári.
Aðeins eitt bú uppfyllti allar kröfur
Samkvæmt upplýsingum sem birtust í fyrrnefndri skýrslu atvinnuvegaráðherra hafði aðeins eitt af nítján svínabúum landsins uppfyllt allar kröfur reglugerðarinnar. Við eftirlit árið 2024 kom fram að flest bú höfðu uppfyllt kröfur um lausagöngu gyltna en meirihluti þeirra hafði ekki uppfyllt allar kröfur um gólfgerð og legurými.
Viðbótarfresturinn er þó ekki sjálfgefinn. Framleiðendur þurfa að sækja sérstaklega um hann og sýna fram á að þeir hafi ekki getað uppfyllt kröfurnar vegna aðstæðna sem þeir beri ekki sjálfir ábyrgð á.
Hagnaður Stjörnugríss nær einn og hálfur milljarður
Stjörnugrís hefur verið í brennidepli undanfarna daga eftir að myndskeið úr svínabúum fyrirtækisins voru birt á samfélagsmiðlum. Á myndskeiðunum má meðal annars sjá dauð svín og dýr með áverka og hefur aðbúnaður þeirra sætt harðri gagnrýni.
Forsvarsmenn Stjörnugríss hafa hins vegar sagt að ástand dýranna sem sjáist á upptökunum megi rekja til innbrota Einars Loga Péturssonar, sem tók myndskeiðin. Einar Logi hefur hafnað þeirri skýringu.
Myndefnið hefur vakið spurningar um hvort aðbúnaður á búum fyrirtækisins uppfylli kröfur reglugerðar um velferð svína. Dýraverndarsamband Íslands vill að stjórnvöld endurskoði viðbótarfrestinn. Aðstæður svína hjá Stjörnugrís varpi ljósi á kerfisbundið vandamál.
Rekstur Stjörnugríss hefur gengið vel undanfarin ár samkvæmt rekstrartölum fyrirtækisins. Samanlagður hagnaður á árunum 2023 til 2025 nemur rúmlega 1,45 milljörðum króna. Mestur var hagnaðurinn í fyrra eða tæpar 554 milljónir króna.
Heildareignir Stjörnugríss námu tæpum fjórum milljörðum króna í árslok 2025 og eiginfjárhlutfallið var tæp 84 prósent. Skuldahlutfallið var rúm 16 prósent.
Fjárhagsstaða fyrirtækisins hefur styrkst verulega á undanförnum árum. Eiginfjárhlutfallið var tæp 70 prósent árið 2020 en hefur síðan hækkað um rúm fjórtán prósentustig.
Fréttastofa hefur óskað eftir upplýsingum um hvort Stjörnugrís hafi óskað eftir viðbótarfresti til ársins 2028, hvaða endurbætur hafi þegar ráðist í og hversu kostnaðarsamar framkvæmdir kunni enn að vera eftir.