Melita Norwood starfaði sem ritari hjá breskri málmrannsóknarstofnun (British Non-Ferrous Metals Research Association) í London og bjó í sama parhúsinu í Bexleyheath í rúm sextíu ár. Nágrannarnir þekktu hana sem vinstrisinnaða ömmu sem sauð sultu og ræktaði epli. Fáa grunaði að hún hefði um árabil ljósmyndað leyniskjöl úr kjarnorkuvopnaáætlun Breta og komið þeim til Sovétmanna.
Saga Melitu er umfjöllunarefni nýjasta þáttar Skuggavaldsins í umsjón prófessoranna Huldu Þórisdóttur og Eiríks Bergmanns. Þátturinn er sjálfstætt framhald af umfjöllun þeirra um Vasilí Mítrokhín, skjalavörðinn hjá KGB sem afritaði leyndarmál stofnunarinnar í laumi og flúði með þau til Vesturlanda árið 1992. Í skjölum hans leyndist njósnari með dulnefnið „Hola“.
Dóttir lettnesks byltingarmanns og enskrar súffragettu
Hola reyndist vera Melita Norwood. Hún var dóttir lettnesks byltingarmanns og enskrar súffragettu og gekk ung til liðs við breska kommúnistaflokkinn. Árið 1937 var hún orðin fullgildur útsendari sovésku leyniþjónustunnar.
Þegar skjöl um kjarnorkuáætlun Breta fóru að berast yfirmanni hennar á stríðsárunum nýtti hún aðgang sinn, tók þau úr öryggisskápnum, ljósmyndaði þau og skilaði aftur á sinn stað. Gögnin flýttu verulega fyrir þróun sovésku kjarnorkusprengjunnar.
Það sem vekur hvað mesta athygli er hversu oft MI5 komst á spor Melitu. Stofnunin hafði hana undir grun strax á fjórða áratugnum og rannsakaði mál hennar alls sex sinnum. Árið 1965 komst MI5 að þeirri niðurstöðu að hún væri að öllum líkindum sovéski njósnarinn sem gekk undir nafninu Tina en mat það svo að sannanir skorti fyrir dómi.
Þegar Mítrokhín-skjölin staðfestu grunsemdirnar árið 1992 var enn ákveðið að halda að sér höndum, meðal annars vegna þess hve illa það þótti líta út almannatengslalega að draga aldraða konu fyrir dóm.
Fannst í símaskránni og viðurkenndi njósnirnar um leið
Uppljóstrunin varð endanlega opinber árið 1999 í tengslum við útgáfu bókar um Mítrokhín-skjölin í Bretlandi. Blaðamenn fundu hana í símaskránni og bönkuðu einfaldlega upp á hjá henni. Melita viðurkenndi gjörðir sínar umbúðalaust á tröppunum heima hjá sér. Hún kippti sér lítið upp við fjölmiðlafárið og lýsti því staðfastlega yfir að hún hefði ekki gert þetta fyrir peninga, heldur af hugsjón, og myndi gera það sama aftur.
Melita var aldrei ákærð, bæði sökum aldurs og þar sem brot hennar þóttu of gömul. Leyniþjónustan sætti hins vegar harðri gagnrýni fyrir að hafa látið hana afskiptalausa í áratugi. Melita lést árið 2005, 93 ára að aldri, eftir að hafa afrekað það sem mörgum öðrum mistókst: að njósna fyrir Sovétríkin og komast upp með það.
Í Skuggavaldinu velta Hulda og Eiríkur því fyrir sér hvort það hafi verið meira en bara skrifræði sem bjargaði henni. Staðalmyndin um hina meinlausu eldri konu spilaði lykilhlutverk. Fyrst gerði hún ritarann ósýnilegan í fjörutíu ár, og síðar varð sú ímynd að röksemd innan leyniþjónustunnar fyrir því að best væri að láta hana í friði.
Þáttur Skuggavaldsins er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum.