Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nauðgun og er honum gefið að sök að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við sjúkling sem var inniliggjandi á Landspítalanum. Afmáð er úr ákæru á hvaða deild sjúkrahússins hið meinta brot var framið en atvikið átti sér stað þriðjudagskvöldið 23. apríl árið 2024. Ákærði er sagður hafa sett fingur sinn inn í leggöng konunnar og káfað innanklæða á brjóstum, geirvörtum og maga hennar, og nuddað kynfæri hennar.
Ákærður fyrir að nauðga ósjálfbjarga konu á Landspítalanum