Karlmaður á fertugsaldri, sem grunaður er um manndráp í Breiðholti aðfararnótt 1. nóvember, hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 7. desember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Verjandi mannsins sagði við fréttastofu fyrr í dag að lögregla færi fram á framlengingu á gæsluvarðhaldinu.
Til átaka kom á milli mannsins og föður hans og tveggja manna. Sonurinn beitti þar hnífi og lést annar þeirra sem fyrir stungunum varð. Hinn særðist talsvert og er á sjúkrahúsi.
Faðirinn, sem er á sextugsaldri og var sömuleiðis handtekinn, var látinn laus úr haldi um helgina. Maðurinn losnaði úr einangrun um helgina.