Tillagan kemur fram í minnisblaði sem ráðuneytið sendi efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í dag. Nefndin hefur til meðferðar frumvarp um breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga ársins 2027. Ráðuneytið telur að fjölgunin yrði mest meðal foreldra í sambúð.
Hærri tekjur áður en bætur skerðast
Óskertar grunnbætur á hvert barn myndu hækka úr 514.500 í 570.000 krónur hjá einstæðum foreldrum. Hjá hjónum og sambúðarfólki færu þær úr 345.000 í 382.000 krónur samanlagt á hvert barn. Við bætast allt að 130.000 krónur fyrir hvert barn yngra en sjö ára.
Hjá einstæðu foreldri færu mörkin þar sem bæturnar byrja að skerðast úr 5.844.000 í 6.108.000 krónur á ári. Hjá hjónum og sambúðarfólki er miðað við samanlagðan tekjustofn og þar færu mörkin úr 11.688.000 í 12.214.000 krónur. Við endanlegan útreikning barnabóta árið 2027 er miðað við tekjur ársins 2026.
21 milljarður áætlaður í fjárlagafrumvarpinu
Ráðuneytið áætlar að greiðslur yrðu tæpir 18 milljarðar króna árið 2027 ef bótafjárhæðir og tekjumörk ársins 2026 giltu áfram. Með tillögunni yrðu greiðslurnar rúmlega þremur milljörðum króna hærri og næðu þeim 21 milljarði sem þegar er gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu. Það er sama fjárhæð og í fjárlögum ársins 2026.
Ríkisstjórnin boðaði hækkun barnabóta og tekjumarka 8. október í tengslum við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Hún hyggst leggja fram annað frumvarp í síðasta lagi haustið 2027 um að barnabætur fylgi þróun marka tekjuskattsþrepa frá árinu 2028.