Guðrún ítrekaði síðari spurninguna eftir fyrra svar Kristrúnar. Í svörum forsætisráðherra kom ekki fram hvort hún hefði vitað af viðvörununum á hvorum tímapunkti.
Kristrún hitti Hörð sama dag og hann tilkynnti að hann hygðist hætta eftir sautján ár sem forstjóri Landsvirkjunar. Daði Már sagði síðar á þingi að almennur ágreiningur um stjórnun hefði legið að baki starfslokunum. „Hér er sagan öll,“ sagði hann 19. október.
„Þegar ég hitti Hörð Arnarson á sínum tíma þá vissi ég ekki hvert efni fundarins var,“ sagði Kristrún. Hún sagðist hafa skilið það sem fram kom á fundinum þannig að ágreiningur Harðar og stjórnar hefði snúist um verklag.
Vísaði í minnisblað Harðar
Guðrún vísaði til minnisblaðs Harðar til stjórnar Landsvirkjunar, dagsetts 15. júní. Þar varaði hann við því að aukin samskipti fjármálaráðuneytisins við stjórnina utan aðalfunda gætu verið túlkuð sem pólitísk afskipti. Hörður taldi að ef Eftirlitsstofnun EFTA kæmist að þeirri niðurstöðu að stjórnvöld hefðu afskipti af rekstrinum gæti Landsvirkjun orðið óstarfhæf. Þá þyrfti, að hans mati, að senda eftirlitsstofnuninni allar helstu ákvarðanir fyrirtækisins.
Guðrún spurði hvort Kristrún teldi boðlegt að fjármálaráðherra segði þinginu að öll sagan væri sögð án þess að greina frá viðvörununum. Hún gagnrýndi Kristrúnu fyrir að gera lítið úr málinu og spurði hvort hún teldi sig bera ábyrgð á því að þingið hefði fengið rangar upplýsingar, hefði hún vitað af viðvörununum.
Sagði fundina eðlilega
Kristrún sagðist ekki þekkja smáatriði málsins. Hún sagði fundi ráðuneytisins með stjórn Landsvirkjunar eðlilega og fjölda þeirra í takt við það sem tíðkast hefði. Hún vísaði jafnframt til lögfræðiálits þegar hún ræddi að stjórnarmenn hefðu í einstaka tilvikum hist fyrir stjórnarfundi.
Kristrún sagði að stjórnarmenn hefðu áður verið tilnefndir á pólitískum forsendum og að núverandi stjórn hefði verið valin á faglegum forsendum. Hún sagði fjármálaráðherra hafa lagt fram öll gögn um málið og verið tilbúinn að skoða það nánar.
„Ég hef ekki haft áhyggjur af þessu máli,“ sagði Kristrún. Síðar á þingfundinum sagðist hún bera fullt traust til Daða Más í málinu og kvaðst ekki hafa áhyggjur af aðkomu Eftirlitsstofnunar EFTA.
Daði Már sagðist í skýrslu sinni á Alþingi 4. nóvember standa við skýringuna sem hann gaf þinginu 19. október á starfslokum Harðar. Í umræðunum viðurkenndi hann að svar sitt um stjórnarfundi án Harðar hefði verið ónákvæmt.