Qiulae Wong, formaður Tækifærisflokksins í Nýja-Sjálandi, er í lykilstöðu eftir nýafstaðnar þingkosningar og gæti ráðið því hver stýrir næstu ríkisstjórn. Enginn flokkur náði meirihluta þingsæta í kosningunum á laugardag.
Wong hefur sagst reiðubúin að vinna með stærstu flokkunum tveimur, Þjóðarflokki forsætisráðherrans Christopher Luxon sem fékk flest þingsæti og Verkamannaflokknum, flokki Chris Hipkins, fyrrverandi forsætisráðherra. Hún segir góða kosningu Tækifærisflokksins sýna að fólk vilji breytingar eftir áratug popúlisma og öfgastefnu um allan heim.
„Við höfum séð að popúlismi skilar ekki árangri,“ sagði Wong við blaðamenn. Uppistaðan í popúlisma sé lítil og hann sé ekki líklegur til þess að tryggja framgang ríkja. „Þess vegna er mjög hvetjandi að hafa fengið þennan stuðning.“
Nærri 150 þúsund Nýsjálendingar hafi kosið Tækifærisflokkinn vegna þess að þeir vilji sjá meira raunsæi í stjórnmálum.“
Gera má ráð fyrir að næstu vikur fari í stjórnarmyndun. Christopher Luxon hefur lýst því yfir að flokkabandalag sem hann fer fyrir á hægri vængnum hafi tryggt sér stjórnarmyndunarumboð. Bráðabirgðaniðurstöður sýna að Þjóðarflokkurinn hafi fengið flest sæti í þinginu og að hann gæti náð naumum meirihluta með stuðningi samstarfsflokka. Þótt hann hafi sagst ekki þurfa stuðning Tækifærisflokksins til að mynda ríkisstjórn hefur hann sagst opinn fyrir samstarfi. Wong segist vinna með þeim flokki sem fékk flest þingsæti. Þó verði ekkert gefið eftir í stefnumálum flokksins um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum, framfærslukostnað og að hreinsa til í stjórnmálum landsins.
Endanlegar niðurstöður kosninganna liggja þó ekki fyrir fyrr en 27. nóvember.