Brand var sakfelldur í síðustu viku en refsing hans var ákveðin í dag. Dómari málsins hafði þegar gefið út að Brand ætti yfir höfði sér þunga refsingu.
Refsidómur yfir honum var kveðinn upp Southwark Crown-dómstólnum í Lundúnum um klukkan 14:30. Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins segir að Brand hafi ekki brugðist við niðurstöðunni öðruvísi en að segja eiginkonu sinni að hann elski hana.
Brand var ákærður fyrir þrjár nauðganir, þrjú kynferðisbrot og fyrir tilraun til blygðunarsemisbrots. Ásakanirnar náði yfir tímabilið 1999 til 2009 og vörðuðu sex konur. Þær eiga allar rétt á nafnleynd ævilangt en ein þeirra sem hann varð sakfelldur fyrir að brjóta á kom fyrir dóminn í dag og lýsti áhrifum brotsins. Það gerði hún á bak við skilrúm til þess að vernda nafnleynd sína.
Að neðan má sjá þegar dómari í málinu greindi frá refsingu í málinu.