Ekið var á tvær tíu ára stúlkur á Hlíðarbraut við Teigarsíðu á Akureyri upp úr klukkan 13 í dag. Þetta staðfestir Jón Valdimarsson varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra við fréttastofu.
Þær voru fluttar brott með sjúkrabíl. Ekki er talið að þær hafi slasast alvarlega. „Þær voru uppistandandi,“ segir Jón. Hann getur ekki tjáð sig um tildrög slyssins. Þriggja bíla árekstur varð á nánast sama stað fyrir helgi.