Það var um miðjan október sem hitastigið í kælum í um 150 matvöruverslunum í Frakklandi var hækkað svo matvaran eyðilagðist. Kælarnir voru hitaðir í allt að fimmtíu gráður um miðja nótt og kviknaði eldur í nokkrum verslunum.
Talið er að tækin hafi verið keyrð á úreltum eða gömlum búnaði sem auðveldaði tölvuþrjótunum að brjóast inn. Heildarkostnaðurinn vegna þessa gæti numið tugum milljóna evra. Sebastian Lecournu skipaði frönsku netöryggissveitinni að rannsaka málið.
VG greinir frá því að Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, hafi staðfest fregnirnar en Reuters greindi fyrst frá og hafði eftir heimildarmönnum sínum. Barrit hafi í kjölfarið varað við afleiðingum árásarinnar og geti írönsk yfirvöld búist við frekari refsiaðgerðum frá Evrópusambandinu.
Að minnsta kosti eitt sambærilegt atvik hefur átt sér stað í Bandaríkjunum nokkru fyrir umrædda árás. Í kjölfar hennar var síðan önnur sambærileg árás framkvæmd, meðal annars í frönskum blóðbönkum og í Eistlandi, Finnlandi og Belgíu.