Starfsmannamál Hvíta hússins hafa verið tilefni margra frétta undanfarið.
Í gær bárust fréttir af því að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði boðið Dana White, framkvæmdastjóra bardagasamtakanna UFC, starf fjölmiðlafulltrúa Hvíta hússins.
Hvíta húsið hefur verið án fjölmiðlafulltrúa frá því Katie Zacharia var vikið úr starfi 16. október, innan við viku eftir að hún hóf störf.
Í fyrradag var tilkynnt um afsögn Susie Wiles, starfsmannastjóra Hvíta hússins. Hún hafði stýrt starfi forsetaskrifstofunnar frá upphafi seinna kjörtímabils Trumps árið 2025.
Embætti fjölmiðlafulltrúa og starfsmannastjóra eru meðal valdamestu embætta Hvíta hússins.
„Dana, gerðu það, taktu við starfinu!“
Fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins stýrir samskiptum forsetans við fjölmiðla.
Karoline Leavitt gegndi starfinu frá því Trump tók við embætti í janúar 2025 og þar til hún sagði starfi sínu lausu í lok ágúst. Hún sagði ástæðuna vera þá að hún vildi fá meiri tíma með fjölskyldunni sinni.
Katie Zacharia tók við í byrjun október. Hún hafði áður starfað hjá Trump Media og Truth Social sem samskiptaráðgjafi.
Zacharia hóf störf 12. október og hélt sinn fyrsta og eina blaðamannafund degi síðar. Hún átti enga óskabyrjun í starfi, hún þótti ósannfærandi og ruglaðist til að mynda á eiginmanni sínum og Trump.
Eftir fimm daga í starfi sagði Trump að Zacharia ætti að íhuga hvort starfið hentaði henni. Hún hætti sama dag.
Síðan þá hefur staða fjölmiðlafulltrúans verið ómönnuð.
Í gær bárust svo fréttir af því að Trump hefði boðið Dana White, framkvæmdastjóra UFC, starfið.
Trump birti færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Socal þar sem hann sagði White verða einstakan fjölmiðlafulltrúa.
„Dana, gerðu það, taktu við starfinu!“, skrifaði Trump.
White hefur staðfest að hann eigi fund með Trump í Washington á morgun.
Wiles út og Miller inn
Starfsmannastjóri Hvíta hússins er talinn vera einn nánasti ráðgjafi forseta. Meðal verkefna er að veita forseta pólitísk og stefnumótandi ráð, sem geta haft áhrif á ákvarðanir.
Starfsmannastjórinn er einnig yfirmaður starfsfólks forsetaskrifstofunnar og stýrir því hverjir hafi aðgang að forsetanum.
Susie Wiles tók við starfinu við upphaf seinna kjörtímabils Trumps 2025. Hún var fyrsta konan til að gegna því.
Trump tilkynnti í fyrradag að Wiles hefði sagt starfi sínu lausu og að hún myndi færa sig yfir í annað pólitískt starf hjá honum.
Í hennar stað kemur Stephen Miller, sem hefur verið einn helsti ráðgjafi Trumps í innflytjendamálum. Miller er þekktur fyrir harða stefnu, fyrir að styðja brottvísanir og fyrir að vilja auka vald forsetans.
Í færslu á samfélagsmiðlinum X sagði Miller að markmið hans í starfi verði að verja hið stórkostlega lýðveldi Bandaríkjanna. Hann sagði það auk þess heiður að vera boðið starf starfsmannastjóra.
Áhrif nýafstaðinna þingkosninga
Demókratar unnu meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings í nýafstöðnum þingkosningum og var sigurinn mun stærri en búist var við.
Margir fréttaskýrendur segja að megn óánægja og reiði með ýmis stefnumál Trumps hafi ráðið úrslitum frekar en hrifning af Demókrataflokknum.
Trump segist ætla að vinna með þinginu en ráðning Miller er sögð merki um að Trump sé að búa sig undir pólitíska baráttu.
Trump hefur sjálfur ekkert gefið upp um hvort ráðning Millers sé liður í að ýta enn frekar undir harða innflytjendastefnu hans en erlendir fréttaskýrendur halda því margir fram að svo sé, vegna þess hve ráðning hans kemur skömmu eftir þingkosningarnar.