Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við Vísi. Jónas Hallgrímur Ottósson yfirlögregluþjónn á Vesturlandi segir að tveir farþegar hafi verið í bílnum. Annar þeirra hafi náð að koma sér út af sjálfsdáðum en hinn ekki. Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan þess farþega að svo stöddu en vinna stendur enn yfir á vettvangi.
Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar staðfestir í samtali við fréttastofu að þyrla gæslunnar hafi verið kölluð út vegna slyssins að beiðni lögreglunnar á Vesturlandi. Hún hafi tekið á loft rétt eftir klukkan ellefu.
Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að umferðarslys hafi orðið á Snæfellsnesvegi við Kleifá. Segir að vegurinn geti verið lokaður tímabundið.