Er þetta meðal þeirra mála sem koma fram í yfirliti lögreglu frá deginum í dag.
Þá bárust lögreglu þrjár tilkynningar um ósætti milli fjölskyldumeðlima, ein í hverfi 105, önnur í hverfi 111 og sú þriðja í hverfi 110, þar sem lögregla náði að koma á sáttum. Málunum er ekki lýst frekar.
Í hverfi 104 í Reykjavík handtók lögregla einn eftir að tilkynning barst um að hann væri að sparka í bíla. Þá var tilkynnt um „aðila að vera að taka myndir af starfsfólki“ í fyrirtæki í miðborginni. Málið var leyst af lögreglu á staðnum.
Þá barst tilkynning um umferðaróhapp í hverfi 220. Engin slys urðu á fólki.