Íslensk erfðagreining vísar þeim orðum Kára Stefánssonar fyrrverandi forstjóra á bug að félagið hafi farið með ósannindi í umfjöllun Bloomberg um rannsóknir tengdar þróun þyngdarstjórnunarlyfsins MariTide, sem nú er í klínískri þróun hjá Amgen.
Hvorki hafi verið sagt ósatt né staðreyndir rangfærðar um framlag fyrirtækisins og vísindamanna þess.
Hvergi sé heldur fullyrt í greininni að vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafi fyrstir komið fram með kenningar um að GIPR-próteinið gæti tengst líkamsþyngd eins og sagt var í viðtalinu.
Þeir hafi árið 2010 verið hluti alþjóðlegs rannsóknarhóps sem birti vísindagrein þar sem sýnt var fram á tengsl próteinsins við líkamsþyngd manna.
Í yfirlýsingu Íslenskrar erfðagreiningar segir að framlag vísindamanna fyrirtækisins hafi meðal annars falið í sér mikilvægar niðurstöður erfðarannsókna á mönnum sem styrktu vísindalegar forsendur þróunar MariTide.
„Íslensk erfðagreining leggur höfuðáherslu á örugga varðveislu þeirra gagna sem fyrirtækið varðveitir og vinnsla með þau gögn eru háð leyfi Vísindasiðanefndar með umsögn Persónuverndar og vinnsla með persónugreinanleg gögn fer eingöngu fram í starfsstöðvum ÍE við Sturlugötu í Reykjavík.“