Austurfrétt greindi fyrst frá og kemur þar fram að það sé vægast sagt óvenjulegt að leðurblökur fljúgi um á Íslandi. Samkvæmt Vísindavefnum flækjast þær til landsins annað hvort með háloftavindum eða skipum.
Matvælastofnun staðfestir að hafa fengið tilkynningu um lifandi leðurblöku á svæðinu en dýrið sé enn ekki fundið. Þá vinnur stofnunin í samstarfi við Náttúruverndarstofnun að því að finna og handsama leðurblökuna.
„Matvælastofnun óskar eftir að almenningur tilkynni tafarlaust ef vart verður við leðurblökuna. Mikilvægt er að tilkynningar innihaldi nákvæma staðsetningu, helst í hnitum,“ segir í tilkynningu og vísað er á ábendingakerfi MAST.
Almenningi er ráðlagt að ekki reyna að handsama leðurblökurnar þar sem þær eru þekktir hýslar ýmissa veira. Þær geta valdið alvarlegum sjúkdómum í mönnum og dýrum, þar á meðal veira sem eru skyldar þeim sem valda hundaæði.
„Þótt engin slík smit hafi hingað til greinst hér á landi og líkurnar á smiti séu taldar litlar, er mikilvægt að sýna varúð, þar sem meðal annars bit eða rispur geta skapað smithættu.“
Ef það reynist nauðsynlegt að handsama leðurblökuna er fólki ráðlagt að klæðast þykkum hönskum og yfirhöfn sem ólíklegt er að dýrið geti bitið í gegnum. Ef hún hangir má setja dós, stórt pappaglas eða kassa yfir og renna stífu pappaspjaldi á milli leðurblökunnar og yfirborðsins. Einnig er hægt að henda röku handklæði yfir leðurblökuna og vefja því varlega utan um hana.