„Við erum að sjá það hjá Kópavogsbæ að veikindakostnaðurinn er mjög hár og þess vegna viljum við líka endurskoða þessar reglur og ráðast í þessar aðgerðir til þess að draga úr veikindakostnaði,“ sagði Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, í viðtali í Reykjavík síðdegis.
Fyrr í dag var fjallað um kynningu Ásdísar fyrir bæjarráði á drögum að breyttu verklagi um veikindi starfsmanna. Með þeim mun bærinn til dæmis kalla eftir læknisvottorðum frá starfsfólki sem er ítrekað frá vegna skammtímaveikinda.
Ásdís sagði að bæjarstjórnin hefði unnið undanfarin tvö ár í því að draga úr veikindafjarvistum starfsfólks, sér í lagi skammtímaveikindum. Til að mynda var rætt við starfsmenn sem glímdu oftar við skammtímaveikindi og gert skylt að tilkynna næsta yfirmanni veikindin með símtali.
„Það sem við erum að boða núna er að halda áfram með þessar aðgerðir sem við höfum staðið fyrir undanfarin tvö ár en jafnframt herða ákveðnar reglur, fara í viðbótaraðgerðir gagnvart þeim sem við sjáum að eru kannski með óvenju miklar eða háar veikindafjarvistir,“ sagði hún.
Tveir milljarðar
Starfsfólk sem er að meðaltali að tilkynna veikindi tvo daga í mánuði þarf með breytingunum að fara til læknis og fá staðfest veikindavottorð. Ásdís sagði að með þessu gæti bærinn fengið betri upplýsingar um hvað starfsmennirnir séu að glíma við. Ásdís vildi þó ekki meina að ástæðan geti verið viðhald húsa og bregðist Kópavogsbær ávallt skjótt við ef það koma vísbendingar um slíkt.
„Mögulega eru það starfsaðstæður. Kannski þarf viðkomandi starfsmaður meiri stuðning og þetta eru að okkar mati mikilvægar upplýsingar sem við þurfum að fá til að geta brugðist við,“ sagði hún.
Einnig verði hægt með þessu að draga úr veikindakostnaði sem sé almennt hærri hjá hinu opinbera miðað við almennan vinnumarkað.
„Þetta eru svona tveir milljarðar á hverju einasta ári. Þannig að þið sjáið að þetta er fljótt að telja að ef við náum árangri þarna að draga úr fjarvistum þá er kostnaðurinn fljótur að lækka.“
Nýti réttinn þegar þau eru sannarlega veik
Er markmiðið hjá þér þá að finna fólk sem er að misnota veikindaréttinn?
„Markmiðið er auðvitað fyrst og fremst að draga úr veikindafjarvistum, fá skýringar á því af hverju við erum að sjá ákveðinn hóp starfsfólks sem er með tíðari fjarvistir en við teljum eðlilegt og greina þá ástæður þess.“
Hún telur að um fimm til átta prósent af þeim sem tilkynna veikindi séu með tilhæfulausar fjarvistir. Það sé ekki stór hópur en samt sem áður mikilvægt að grípa til aðgerða og veita þann stuðning sem þarf.
„Vegna þess að veikindarétturinn er auðvitað mjög mikilvægur fyrir starfsfólk þegar þau verða sannarlega veik.“