Þetta kemur fram í skýrslu Fjölmiðlanefndar, Netvíss og Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands um áhorf barna og ungmenna á klám á netinu. Þar segir að áhorf á klám meðal ungmenna hafi dregist verulega saman frá árinu 2021 og sömuleiðis séu ekki eru merki þess að klámáhorf sé að færast niður í yngri aldurshópa.
Er þetta í þriðja skiptið sem Menntavísindastofnun stendur fyrir slíkri rannsókn. Var hún fyrst gerð árið 2021, endurtekin 2023 og nú eru birtar niðurstöður gagna sem safnað var árið 2025.
Klámáhorf minnst meðal stúlkna í sjöunda bekk
Klámáhorf unglinga og ungmenna er minnst meðal stúlkna í sjöunda bekk grunnskóla en tvö prósent þeirra segjast hafa horft á klám á netinu. Þrjú prósent stráka á sama aldri segjast hafa horft á klám á netinu.
Meðal nemenda í áttunda til tíunda bekk svöruðu átta prósent stúlkna því játandi að hafa horft á klám á netinu en 21 prósent drengja. Í framhaldsskóla eykst áhorf meðal drengja töluvert en 62 prósent segja að þeir hafi horft á klám en til samanburðar svöruðu 25 prósent stelpna á sama aldri því játandi.
Meirihluti horfir sjaldnar en einu sinni í viku
Í 8. til 10. bekk sögðust 10 prósent drengja horfa daglega á klám en meirihlutinn, 59 prósent, sagðist horfa sjaldnar en einu sinni í viku. Meðal stelpna á sama aldri sem sögðust horfa á klám segjast sex prósent horfa daglega á klám og 64 prósent segjast horfa sjaldnar en einu sinni í viku.
11 prósent drengja í framhaldsskóla segjast horfa daglega á klám en rúmur fjórðungur prósent tvisvar til sex sinnum í viku. Hins vegar horfa aðeins tvö prósent stúlkna í framhaldsskóla á klám daglega og 8 prósent segjast horfa tvisvar til sex sinnum í viku. Þá segjast 85 prósent horfa sjaldnar en einu sinni í viku.
Neikvæð viðbrögð algengari meðal stúlkna
Jákvæð eða spennuleitandi viðbrögð við efninu eru algengari meðal stráka en stelpna, þar sem 38 prósent stráka í unglingadeild og 47 prósent stráka í framhaldsskóla segjast hafa annaðhvort líkað áhorfið eða fundist það spennandi. Hjá stelpum eru þessi hlutföll lægri, eða 30 til 34 prósent í unglingadeild og framhaldsskóla.
Neikvæð viðbrögð eru mun algengari meðal stelpna en stráka. Í 8.–10. bekk segist fjórðungi stelpna hafa fundist áhorfið óþægilegt eða ógeðslegt. Meðal stráka eru þessi viðbrögð mun sjaldgæfari, eða 11 prósent.
Meirihluti framhaldsskólanema séð klámauglýsingu á netinu
Þá eru unglingar líklegri til að hafa séð auglýsingu á netinu eftir því sem þeir eldast. Í 7. bekk hafa tiltölulega fáir séð slíkar auglýsingar, sjö til tíu prósent, en í unglingadeild fjölgar þeim í 24 til 34 prósent. Í framhaldsskóla hefur meirihluti stráka og stelpna séð klámauglýsingu á netinu.
Þau sem höfðu séð auglýsingar um klám á netinu voru spurð nánar um hvar þau höfðu séð þær. Flestir svöruðu að þau hefðu séð auglýsingarnar á ólöglegum streymisveitum, TikTok, Google og Instagram.
Flestar nektarmyndir koma frá ókunnugum
Þá sagðist tæplega helmingur stúlkna í framhaldsskóla hafa fengið senda nektarmynd samanborið við tæpan fjórðung drengja á sama aldri. Á meðal nemenda í áttunda til tíunda bekk hafa 10 prósent stráka fengið senda nektarmynd og 19 prósent stelpna. Á báðum aldursstigum sögðu flestir að sá sem hefði sent þeim nektarmyndir væri ókunnug manneskja á netinu. Meðal drengja í framhaldsskóla er algengasta svarið þó „kærasti minn/kærasta mín.“