Thomas Massie, fulltrúadeildarþingmaður Repúblikana í Kentucky-ríki, hefur lagt til að Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, verði ákærður til embættismissis vegna stríðsins í Íran.
Hann segir ráðherrann hafa brotið gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna. Massie lagði fram ákæru í átta liðum. Þar er Hegseth meðal annars gefið að sök að heyja ólöglegt stríð í Íran og misnota vald sitt sem yfirmaður varnarmála. Varaforseti Bandaríkjanna kenndi nýverið stríðinu í Íran um tap Repúblíkana í þingkonsningunum.
Massie segist vilja að Trump víki Hegseth úr embætti áður en nýkjörnir demókratar geti gert það þegar þeir taka sæti sín á þinginu í janúar.
Demókratar unnu stórsigur í þingkosningum í landinu á dögunum. Repúblikanar eru þó enn með meirihluta á fulltrúadeildarþingi þar til nýkjörnir þingmenn Demókrata taka sæti í janúar.
Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs hafa einhverjir samflokksmenn Massie, og Hegseth, gefið til kynna að þeir gætu stutt tillöguna en það verður að teljast líklegt að þingmenn Demókrata sem þegar sitja á þingi styðji hana.
Tillöguna þarf að taka fyrir í fulltrúadeildinni á næstu tveimur dögum. Yrði hún samþykkt myndi það ekki endilega þýða að Hegseth yrði vikið úr embætti en væri óneitanlega högg fyrir ríkisstjórn Donalds Trump.
Hegseth hyggst halda blaðamannafund á þriðjudaginn en segist ekki hafa miklar áhyggjur af því að verða vikið úr embætti. Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom Hegseth til varnar í dag og sagði tillögu Massie ósanngjarna. Hegseth væri mjög duglegur og klár.