Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að áformað sé að opna skrifstofu í Kaupmannahöfn sem hafi umsjón með „Freyju“, nýju loftvarnarkerfi sem koma á í stað Patriot-kerfis Bandaríkjanna. Freyja er þróað í samvinnu Evrópuríkja undir forystu Úkraínumanna. Í september sagði Zelensky að kerfið yrði tilbúið til prófunar í desember.
Hann segir að skrifstofan gæti opnað innan mánaðar. Starfslið skrifstofunnar yrði fjölþjóðlegt og unnið væri í samstarfi við mismunandi fyrirtæki í varnariðnaði.
Þetta er meðal þess sem Zelensky ræddi á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn í kvöld. Hann er í opinberri heimsókn til Danmerkur og átti fyrr í kvöld fund með þjóðarleiðtogum Norðurlandanna. Þar á meðal var Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.
Tími til að Evrópa tilnefni fulltrúa til friðarviðræðna
Einnig ræddi Zelensky um að kominn væri tími til að Evrópa velji einn fulltrúa til að taka þátt í friðarviðræðum við Rússa og Bandaríkin. Hann er ekki tilbúinn til að tilnefna þann fulltrúa sjálfur. Fyrr í dag útilokaði Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, að hún tæki að sér hlutverkið.
Á fundinum var hann spurður hvort hann gæti nokkurn tímann fyrirgefið Vladimir Pútín Rússlandsforseta innrásina. Svarið var einfalt: „Nei“. Hann bætti svo við að Rússar áttuðu sig ekki á að þeir væru árásaraðilinn og þyrftu að svara fyrir sínar aðgerðir. Það væri hins vegar dómstóla og sögunnar að sjá um að svo verði.