Stefanía Ósk Björgvinsdóttir, nemi í hjúkrunarfræði, eignaðist sitt fyrsta barn þann 29. apríl 2026. Þar sem að barnið fæddist í apríl mátti það ekki, samkvæmt leiðbeiningum landlæknis, fá bólusetningu við RS-veirunni.
Síðasta vetur fór af stað verkefni þar sem foreldrum barna yngri en sex mánaða var boðið að þiggja bólusetningu fyrir börn sín gegn RS-veirunni. Til stendur að halda áfram að bjóða upp á slíka vörn. Börn sem fæddust á skilgreindu RS-tímabili, frá október þar til í mars, fá boð um bólusetningu auk þeirra sem ekki hafa náð sex mánaða aldri fyrir 1. nóvember.
Þar með voru það einungis börn sem fæðast í apríl sem fá ekki boð í bólusetninguna. Fjallað var um málið á Vísi og í kjölfarið kom Guðrún Aspelund í viðtal. Þar sagði hún að virkni bóluefnisins dvíni eftir fimm til sex mánuði og því sé best að gefa það á meðan faraldur stendur yfir eða í aðdraganda hans.
Stefanía Ósk gefur lítið fyrir þær skýringar.
„Við fjölskyldan eigum erfiða reynslu af RS-veirunni. Ég á litla frænku sem hefur veikst alvarlega en þegar hún veikist er þessi bólusetning ekki í boði. Þegar við heyrðum af því að það væri verið að fara að bólusetja við RS-veirunni var mikil ánægja með það,“ segir hún í samtali við fréttastofu.
Þiggur allar bólusetningar
Þegar Stefanía fór á heilsugæslu til að óska sérstaklega eftir bólusetningunni var henni sagt að samkvæmt tilmælum landlæknis fengju börn sem fæðast í apríl hana ekki. Hún hafi farið og lesið nánar um málið.
„Þegar ég sé að þetta er raunin varð ég auðvitað mjög reið,“ segir hún. „Ég þigg allar bólusetningar fyrir barnið mitt og þetta er bólusetning sem ég hefði að sjálfsögðu viljað þiggja.“
Í kjölfar viðtalsins við Guðrúnu birti hún færslu á Facebook þar sem hún gagnrýndi ákvörðunina.
„Ég er hjúkrunarnemi, ég stunda klínískt nám og starfa innan veggja spítalans. Ég þarf að sinna mínum skjólstæðingum sem gætu vel verið með RS og koma svo heim til óbólusetta barnsins míns. Ef hann myndi veikjast alvarlega í vetur myndi ég alltaf hugsa „hvað ef hann væri bólusettur?” og þetta er hugsun sem mig hryllir við,“ skrifaði hún.
Þar segist Stefanía einnig skilja að markhópurinn hafi verið skilgreindur út frá fyrirgögnum sem lágu fyrir og verði fyrirkomulagið endurskoðað en hún skilji ekki að einungis einn mánuður hafi verið skilinn út undan.
„Ég get heldur ekki skilið hvernig þetta á rétt á sér. Þetta svar hennar breytir ekki áhyggjum mínum sem móður. Mér finnst erfitt að sætta mig við að sonur minn, og önnur börn fædd í apríl, skuli vera þau einu sem falla utan hópsins á meðan beðið er eftir niðurstöðum úr uppgjöri átaksins,“ skrifar hún.
„Ég á sérstaklega erfitt með þá tilhugsun að heilsa hans og vernd gegn RS-veiru ráðist eingöngu á því hvenær hann fæddist og hvaða niðurstöður munu koma eftir þennan vetur.“
Engin svör
Stefanía segist í færslunni ekki geta einungis litið á málið út frá sjónarhorni gagnasöfnunar. Barnið hennar fari núna í gegnum fyrsta RS-tímabilið sitt og vill hún ekki að hann þurfi að gjalda fyrir það að kerfið þurfi að safna nægilega miklum gögnum.
Innlögnum hafi fækkað um tugi prósenta eftir að börnin fengu bólusetninguna og því telur hún að ekki þurfi að verja meiri tíma í gagnasöfnun.
„Ef hún ætlar að gera þetta svona fyrir þetta ár vona ég að þetta komi ekki fyrir aftur og það verði ekki aftur einn mánuður skilinn eftir,“ segir hún.
„Þetta er ekkert nema mismunun.“
Stefanía hefur sömuleiðis sent erindi á embætti landlæknis og heilbrigðisráðherra vegna málsins en ekki fengið nein svör.