Níu grunnskólar tóku þátt á öðru undankvöldi hæfileikakeppninnar í kvöld en það voru Ölduselsskóli, Fellaskóli, Langholtsskóli, Dalskóli, Vogaskóli, Landakotsskóli, Hólabrekkuskóli, Árbæjarskóli og Foldaskóli.
Árbæjarskóli komst áfram með atriðið Bestu ár ævi þinnar og Langholtsskóli með atriðið Frelsinu fögnum.
Í gær komust Breiðholtsskóli og Klébergsskóli áfram í úrslit Skrekks. Í heildina taka tæp átta hundruð ungmenni þátt í Skrekk í ár.
Skrekkur, hæfileikakeppni grunnskólanema í Reykjavík, hófst í gær á fyrsta undankvöldi af þremur. Næsta undanúrslitakvöld verður á mrgun og úrslit Skrekks fara síðan fram á mánudaginn næstkomandi, 16. nóvember.