Breskir miðlar á borð við BBC og Sky News greina frá.
Hinn 82 ára Markle var handtekinn í rassíu alríkislögreglu Bandaríkjanna á hjúkrunarheimili í Flórída á föstudaginn síðastliðinn vegna rannsóknar á barnaníðsefni sem fannst á heimili hans í Filippseyjum. Þá var honum gert að sæta stofufangelsi og gert að bera staðsetningarbúnað.
Markle fór fyrir alríkisdómara í dag sagður hafa fjarlægt ökklaband sitt og úrskurðaði dómarinn að hann skyldi áfram vera í haldi alríkislögreglu án möguleikans á að losna gegn tryggingu.
Í síðustu viku gerði FBI húsleit í geymslum hans í Los Angeles. Þar var lagt hald á 78 muni sem hafi innihaldið barnaníðsefni, að sögn alríkislögreglunnar.
Í lok síðasta mánaðar sakaði Thomas Markle yngri, hálfbróðir Meghan, föður sinn um vörslu barnaníðsefnis eftir að hafa fundið ógrynni nektarmynda af börnum á heimili hans í Filippseyjum. Sonurinn kom myndefninu til lögreglunnar á Filippseyjum og tilkynnti málið jafnframt til FBI.
Markle hefur þverneitað fyrir að barnaníðsefnið hafi verið í fórum hans og sagðist ekki hafa búið í húsinu þar sem myndirnar fundust síðastliðin tvö ár. Lögreglan á Filippseyjum segir að um 7.500 nektarmyndir af ólögráða börnum hafi fundist í tölvum sem voru í eigu Markle.