Thomas Massie, fráfarandi þingmaður Repúblikanaflokksins, lagði í gær fram ákæru á hendur Hegseths fyrir embættisbrot. Ákæran eru í átta liðum sem flestir snúa að stríðinu gegn Íran.
211 atkvæði gegn 204 en ellefu demókrata vantaði
Í kvöld voru greidd atkvæði með eða á móti því að ákæra Massie yrði tekin fyrir á þinginu. Fór atkvæðagreiðslan með 211 atkvæðum gegn 204 og batt því enda á tilraun Massie og tryggði það að hún færi ekki lengra á þessu þingi, segir í umfjöllun Politico. Repúblikanar eru í meirihluta í báðum deildum þangað til í janúar.
Ellefu demókratar misstu af atkvæðagreiðslunni og átta repúblikanar sátu hjá. 218 repúblikanar og 214 demókratar sitja í fulltrúadeildinni, auk eins óháðs þingmanns. Þrátt fyrir ósigur repúblikana í þingkosningum studdu allir repúblikanar í fulltrúadeildinni, nema Massie Hegseth, í atkvæðagreiðslunni.
Ákæra í átta liðum
Ákæra Massie á hendur Hegseth snýr einnig að áhlaupinu á Venesúela þegar Nicolas Maduro var numinn á brott og árásum Bandaríkjanna gegn Hútum í Jemen. Eins og frægt er þá bættu starfsmenn Hegseths blaðamanni fyrir mistök inn í Signal-spjall embættismanna um árásirnar, áður en þær hófust.
Hegseth sagði að með gjörðum sínum væri Massie að sýna klerkastjórninni í Íran, leiðtogum fíkniefnagengja og öðrum andstæðingum Bandaríkjanna að ríkið „refsaði sínum eigin stríðsmönnum og borgaralegum leiðtogum fyrir það eitt að framkvæma lögmætar hernaðaraðgerðir“.