Átta grunnskólar tóku þátt á fyrsta undankvöldi hæfileikakeppninnar en það voru Réttarholtsskóli, Seljaskóli, Rimaskóli, Tjarnarskóli, Laugalækjarskóli, Breiðholtsskóli, Víkurskóli og Klébergsskóli.
Breiðholtsskóli komst áfram með atriði sem bar heitið Dulan og Klébergsskóli með atriðið Sveitin er geitin.
Skrekkur, hæfileikakeppni grunnskólanema í Reykjavík, hófst í kvöld á fyrsta undankvöldi af þremur. Næstu undanúrslitakvöld verða á morgun og á miðvikudag. Úrslit Skrekks verða á mánudaginn næstkomandi, 16. nóvember.