Útflutningur á óunnum, slægðum, þorski jókst á árunum 2019-2025.
Á sama tíma hefur starfsfólki í fiskvinnslu fækkað og starfsemin dregist saman.
Yfir sex ára tímabil jókst hlutfall óunnins þorsks af heildarútflutningi tegundarinnar úr 3,3% í 6,4%.
Lögfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi segir mikilvægt að stjórnvöld leiti leiða til að sporna við útflutningnum til að vernda innlenda fiskvinnslu.
Verðmæti sem skipta fiskvinnslur miklu máli
Hvergi innan OECD starfar jafn hátt hlutfall vinnuaflsins innan sjávarútvegs og hér á landi.
Fiskvinnsla er 2,4% af vergri landsframleiðslu.
Gunnar Jónsson, lögfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, segir að aukið hlutfall útflutnings á óunnum þorski geti skipt minni fiskvinnslur miklu máli.
„Ef við horfum á heildarmyndina er þetta kannski ekki mjög stórt hlutfall en þetta eru auðvitað mikil verðmæti sem fara úr landi og þetta er afli sem getur skipt fiskvinnslur miklu máli og ekki síst þær minni.“
Starfsfólki í fiskvinnslu hefur fækkað undanfarinn áratug og stórum fiskvinnslum hefur verið lokað.
Ástæður sem hafa helst verið nefndar eru minni kvóti, skortur á hráefni, aukinn kostnaður, erfiður rekstur, samkeppni við erlenda fiskvinnslu og breyttar rekstrarforsendur.
Mörg sveitarfélög háð tekjum af sjávarútvegi
Gunnar segir að fiskvinnslur hér á landi eigi erfitt með að keppa við stærri, erlendar vinnslur um fisk á uppboðsmarkaði. Á markaðnum sé öllum frjálst að bjóða í aflann og að það gerist ítrekað að íslenskar fiskvinnslur geti ekki boðið sömu verð og þær erlendu.
Mörg sveitarfélög eru háð tekjum af sjávarútvegi. Sem dæmi koma um 30% af heildartekjum Vopnafjarðarhrepps og Langanesbyggðar úr fiskvinnslu.
Aukinn útflutningur og aukin fiskvinnsla erlendis geti haft þau áhrif að fiskvinnslur hér á landi þurfi að hætta starfsemi. Slíkt geti haft mikil áhrif í þeim bæjarfélögum sem reiða sig á slíka vinnu.
Atvinnuvegaráðherra skipaði starfshóp í sumar sem á að greina umfang útflutnings á óunnum fiski og leita leiða til að sporna við honum.
Er einhver lausn að setja á vinnsluskyldu hérlendis eða höft á útflutning?
„Það myndi í sjálfu sér skila hráefninu frekar til íslenskrar vinnslu. Vandinn við það er að það getur verið erfitt gagnvart erlendum skuldbindingum, sérstaklega VTO reglum. Það getur líka haft þau áhrif að verð lækka sem hafa þá áhrif á kjör sjómanna og jafnvel veiðigjöld.“