Virði hlutabréfa í bandaríska tæknirisanum Nvidia féll um rúmlega átta prósent við opnun markaða vestanhafs í morgun, áður en það rétti úr kútnum.
Ástæðan er óvissa vegna kynlífs- og njósnahneykslis sem Jensen Huang, stofnandi og forstjóri fyrirtækisins flæktist í.
Síðdegis var verðið rúmlega fimm prósentum lægra en við opnun og hafði fyrirtækið því fallið í virði um sem nemur tugum þúsunda milljarða króna.
Nvidia er enn eitt verðmætasta fyrirtæki í heimi enda er það leiðandi í framleiðslu örgjörva til notkunar í þróun gervigreindar. Huang, einn ríkasti maður heims, hefur líka verið einn af kyndilberum gervigreindarbyltingarinnar síðustu misseri og er jafnvel lýst sem guðföður gervigreindarinnar.
Því varð töluverður skjálfti í tækniheiminum þegar fréttir tóku fyrst að berast af því að Huang hafi mögulega verið skotmark kínverskra njósnara, og ekki síður þegar hann viðurkenndi í gær að hafa átt í ástasambandi við kínverska konu sem var stjórnandi hjá fyrirtækinu Megaspeed sem var í viðskiptum við Nvidia.
Bandaríska leyniþjónustan telur hana hafa unnið fyrir kínversk stjórnvöld, en Kínverjar blása á slíkt.
Stjórn Nvidia tilkynnti í gær að málið yrði rannsakað innanhúss af óháðum stjórnarmönnum.
Stjórnin sagðist þó ekki hafa neina ástæðu til að trúa því að þjóðaröryggi eða viðskiptaleyndarmálum Nvidia hafi verið ógnað.