Forbes tók saman eignir McCartney og áætlar að þær séu 1,4 milljarða bandaríkjadolla virði.
Það gefur augaleið að McCartney græðir töluvert á tónlist Bítlanna sem hann var í auk John Lennon, George Harrison og Ringo Starr. Hann hafði þó töluvert fyrir því en eftir fjölda lögsókna og samningaviðræðna fær Apple Corps, sem var stofnað til að sjá um tónlist Bítlanna, um fimmtíu milljónir dollara á ári vegna spilanna, sölu á vínylplötum og annars konar varnings.
Því er skipt jafnt á milli Paul, Starr og dánarbúa Lennon og Harrison. Forbes telur að hver hluti sé 150 milljón dollara virði. Til viðbótar fær hann um það bil tíu milljónir dollara á ári þar sem hann eignaðist höfundarrétt laganna sem hann skrifaði og er það talið tvö hundruð milljón dollara virði.
Sígild jólalög
Það eru hins vegar aðrar eignir McCarteny sem hafa skilað honum hvað mestu. Eftir að hann sneri sér að sínum eigin ferli stofnaði hann MLP Communications sem sér um hans eigin lög. Þá eignaðist hann eigin útgáfurétt annarra listamanna líkt og Buddy Holly auk þess að kaupa tónlist úr Broadway-söngleikjum og sígild jólalög.
Tekið er sem dæmi í samantektinni að í hvert skipti sem menntaskólanemar setja söngleikinn Grease á svið fær Paul McCartney greitt. Meðal sígildra jólalaga sem eru í eigu MLP eru It’s Beginning To Look A Lot Like Christmas, The Christmas Song (Chestnuts Roasting On An Open Fire) og Baby, It’s Cold Outside.
Þúsundir laga eru í eigu MLP og er það talið skila tugum milljóna dollara í árstekjur og er verðmæti þess metið að minnsta kosti 250 milljónir dollara.
Poppsöngkona og rappari ofar
Þegar allar eignir McCartney eru teknar saman auk eigna hans í Bretlandi og Bandaríkjunum og málverka eftir Picasso og Magritte er eiginfé hans talið vera að minnsta kosti 1,4 milljarðar bandaríkjadollara. Það eru rúmlega 171 milljarður íslenskra króna.
Einu tveir tónlistarmennirnir sem taldir eru vera ríkari en McCartney eru poppsöngkonan Taylor Swift og rapparinn og framleiðandinn Jay-Z. Eiginfé hennar er talið vera tveir milljarðar bandaríkjadollara og hans 2,8 milljarðar bandaríkjadollara.