Þeir látnu voru allir starfsmenn Habas-verksmiðjunnar í Aliaga-héraði Tyrklands. Sprengingin varð um miðjan dag þegar byggingarkrani hrundi. Mikill Reykur steig upp frá verksmiðjunni og hafa sjónarvottar líkt sprengingunni við jarðskjálfta.
Recep Tayyip Erdogan forseti Tyrklands sagði í ávarpi sínu að sextán hefðu látist. Seinna sagði heilbrigðisráðherrann Kemal Memisoglu að einn til viðbótar hefði látist úr sárum sínum. Erdogan sagði að rannsókn á sprengigunni væri þegar hafin.
Ríkisstjóri Izmir Suleyman Elban sagði í samtali við fjölmiðla að óttast væri að fleiri lægju undir rústum verksmiðjunnar.
Verkamannaflokkur Tyrklands sagði að sprengingin væri í þriðja skiptið á þremur vikum sem starfsmenn týna lífi við vinnu í verksmiðjunni. Þá hefðu sjö látist í vinnuslysum á síðustu tíu árum og að öryggismálum væri ábótavant.