Politico greinir frá. Massie er samflokksmaður Pete Hegseth varnarmálaráðherrans og með því að leggja fram ákæruna hefur hann knúið fram atkvæðagreiðslu um framtíð ráðherrans í þessari viku. Með því að leggja fram ákæruna þarf forseti þingsins að boða atkvæðagreiðslu um hvort að það muni formlega ákæra Hegseth.
Í ákærunni er Hegseth sakaður um „alvarleg afbrot og misgjörðir“ með því að hafa til dæmis hafið stríðið við Íran og orðið hundruðum óbreyttra borgara að bana í árásum á báta meintra fíkniefnasmyglara í Karíbahafi.
Hakeem Jeffries, leiðtogi minnihlutans, sem búist er við að verði forseti fulltrúadeildarinnar á næsta ári, hefur lýst yfir stuðningi við ákæruna og gefur það til kynna að fulltrúar demókrata muni styðja hana. Sumir repúblikanar íhugi einnig að gera slíkt hið sama.
Massie hefur setið á þingi frá árinu 2012 en tapaði í forvali Repúblikanaflokksins í vor. Óvinsældir hans má rekja til andstöðu hans við stríðsreksturinn í Íran og þar sem hann barðist ötullega fyrir birtingu Epstein-skjalanna í samstarfi við Demókrata.