Að minnsta kosti 34 manns drukknuðu eftir að lítill flatbotna trébátur með farandfólk innanborðs sökk undan norðvesturströndum Senegals, um 180 kílómetra norður af höfuðborginni Dakar.
Báturinn var á leiðinni til Kanaríeyja. Fréttastofan AFP greinir frá því að þúsundir hafi látist á undanförnum árum í tilraunum til að komast til Kanaríeyja á Spáni frá Vestur-Afríku.
Bassirou Diomaye Faye, forseti Senegal, skrifaði á Facebook í dag að allar stöðvar hafi verið virkjaðar til að leita þeirra sem saknað er, veita þeim sem lifðu af aðhlynningu og styðja við fjölskyldur hinna látnu.