Veðurfræðingur Vegagerðarinnar bendir vegfarendum á að í kvöld sé veður milt, úrkomusamt og með hægri vestlægri átt. Í nótt verður áfram hægur vindur en styttir upp, léttir til og frystir víða blauta vegi.
Því má búast við hálku á vegum víða á landinu og jafnvel flughálku á köflum.